Glamour

Crocs skór á tískupallinn

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það er óhætt að segja að skóbúnaðurinn á sýningu Christopher Kane hafi vakið athygli en hönnuðurinn ákvað að klæða fyrirsætur sínar í hina svokölluðu Crocs skó. Já, við erum eiginlega orðlausar. 

Skórnir hafa hingað til ekki átt upp á pallborðið meðal tískuáhugenda en það hlaut að koma að því að þessir groddalegu plastskór mundu rata á tískupallinn í einhverri mynd en Kane ákvað að skreyta þá með marglitum steinum. 

Fatalínan, sem var flott, féll alveg í skuggann á skóbúnaðinum sem við þufum að melta. Erum við í alvörunni að fara að vera í Crocs næsta sumar? Leyfum myndunum að tala sínu máli. 

Brúnir crocsskór með steinum.
Hér sést glitta í skónna.
Marglitir crocs.





×