Viðskipti erlent

Manchester tapaði 600 milljónum króna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sjónvarpstekjur Manchester United drógust saman.
Sjónvarpstekjur Manchester United drógust saman. NordicPhotos/afp
Manchester United tapaði 2,9 milljónum sterlingspunda á fyrstu þremur mánuðum ársins. Upphæðin samsvarar um 600 milljónum króna. Ástæðan er samdráttur í sjónvarpstekjum og tekjum af leikjum, segir á vef BBC. Hagnaður Manchester United á fyrstu þremur mánuðum ársins í fyrra nam 11 milljónum punda. Skuldir félagsins jukust um 12,4% á fjórðungnum og námu 395,4 milljónum punda.

Rekstur Manchester United er hins vegar yfir væntingum. Búist er við því að tekjur félagsins verði 103 - 110 milljónir punda á fyrri helmingi ársins. Fyrri spár höfðu gert ráð fyrir að tekjurnar yrðu á bilinu 90-95 milljónir punda. Hlutabréf í félaginu hækkuðu um 1,16 prósent vegna fréttanna.

Manchester er í fjórða sæti í ensku deildinni, sextán stigum á eftir Chelsea, sem er í fyrsta sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×