Lífið

Maíspá Siggu Kling – Vatnsberi: Vertu stoltur af því hvað þú ert einstakur

Elsku Vatnsberinn minn. Mikið ofboðslega, rosalega ert þú búinn að vera duglegur í öllu, þú þarft bara að hrósa þér sjálfur og ekki bíða eftir að neinn annar hrósi þér.

Þú ert svo miklu sterkari persóna en þig hefur nokkurn tímann grunað en stundum hefur álagið á þér verið fullmikið.

Þú hefur samt þann hæfileika að vinna svo vel undir stressi. Síðustu þrír mánuðir munu færa þér nýtt upphaf. Þú átt eftir að sjá sjálfan þig í öðru ljósi, og hugsa: „Vá, hvernig fór ég eiginlega í gegnum þetta allt saman?“

Samt munt þú koma með fleiri og stærri áskoranir á sjálfan þig á næstunni og ná þeim markmiðum sem þú hefur sett þér. Þú þarft líka að muna að stundum þarf maður bara að vera. Ég var með einkanúmerið „to be“ á bílnum hér áður fyrr, bara til að minna mig á að vera. Það skiptir nefnilega ofsalega miklu máli.

Það er kannski pínu erfitt að skilja þetta en staldraðu bara aðeins við og hugsaðu um þetta og lestu betur yfir þetta í spánni þinni.

Sýndu þér meiri þolinmæði. Þú ert með allt sem þú þarft og þú þarft svo sannarlega að vita það.

Þú átt eftir að sýna mikla leiðtogahæfni á þessu tímabili og skapa sterka liðsheild í kringum þig, hvort sem það er fjölskylda, vinir eða einhver verkefni sem þú ert að leysa úr.

Mundu það að þú getur ekki stjórnað hvernig aðrir haga hlutunum og það er gott fyrir þig að sleppa tökunum á fólkinu í kringum þig því að sjálfstraust þitt er að eflast svo mikið að þú færð uppí hendurnar tækifæri sem munu nýtast þér til að gera líf þitt einfaldara og skemmtilegra.

Þú átt eftir að finna hversu viljasterkur þú ert og ekki þrasa við aðra, það hefur ekkert upp á sig. Þú verður aldrei hefðbundinn og taktu því bara svolítið fagnandi hversu mikið þú skerð þig úr hópnum. Það er bara eins og ég segi: Til hvers að vera gras, ef þú getur valið um það að vera blóm? Og þú ert að velja þér akkúrat núna. Að efla leiðtogann í þér, taka ákvarðanir í vinnu eða skóla og vita hvað þú vilt í ástinni.

Næsta ást sem svífur inn í lífið gæti vel verið hin eina sanna. Þú ert að láta fortíðina fara og kveðja hana. Um leið og það gerist tekur þú stökk fram í framtíðina og framtíðin er núna.

Þinn tími er kominn, þín Sigga Kling

Frægir vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts, mannauður.


Tengdar fréttir

Maíspá Siggu Kling – Vog: Hafðu skýr skilaboð í ástinni

Elsku Vogin mín. Þú átt eftir að fara á svo skemmtilegu brokki inn í sumarið. Það er svo margt að gerast hjá þér að það er eins og þú sért stödd í lest, horfir út um gluggann og sjáir lífið og umhverfið þjóta fram hjá þér á fullu spani.

Maíspá Siggu Kling – Hrútur: Notaðu stressið sem orkugjafa

Elsku hjartans kraftmikli og þrjóski Hrúturinn minn. Það er búin að vera sérlega mikil spenna hjá þér og þér hefur fundist eins og þú hafir ekki framkvæmt nóg eða gert allt sem þú ætlaðir þér að gera og þar af leiðandi er einhver smá pirringur á sveimi í kringum þig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×