Viðskipti innlent

London vinsælasta flugleiðin í september

Sæunn Gísladóttir skrifar
9,7% af flugum frá Keflavíkurflugvelli í september voru til London.
9,7% af flugum frá Keflavíkurflugvelli í september voru til London. Vísir/Stefán Karlsson
London er aftur orðin vinsælasta flugleiðin frá Keflavíkurflugvelli, eftir að Kaupmannhöfn var vinsælust í júlí og ágúst. Þessu greinir Túristi frá.

Til London voru farnar 152 áætlunarferðir í september, til Kaupmannahafnar 128 og til New York 109. Í heildina var boðið um 1566 áætlunarflug frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í september. Því voru 9,7%  af heildarflugum frá Keflavíkurflugvelli til London.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×