Viðskipti erlent

Lítil fylgni milli launa forstjóra og velgengni fyrirtækja

Randver Kári Randversson skrifar
Vísir/Getty Images
Samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn á tengslum launa forstjóra og afkomu fyrirtækja eru lítil tengsl þar á milli. Vísbendingar eru um að hluthafa þeirra fyrirtækja sem borga forstjórum hvað hæst laun séu verr settir en aðrir.

Á vefnum thinkprogress.org er fjallað um rannsókn ráðgjafafyrirtækisins Equilar þar sem laun 200 hátt launaðra forstjóra voru borin saman við afkomu fyrirtækjanna sem þeir stjórna. Niðurstöðurnar sýndu enga fylgni milli launa forstjóra og afkomu fyrirtækja.

Samkvæmt rannsókninni koma hluthafar þeirra fyrirtækja sem borga forstjórum hvað hæst laun verr en aðrir,en tap hluthafa þeirra fyrirtækja er að meðaltali 1,4 milljarðar dollara. Talið er að skýringin á því sé sú að ofurlaun fylli forstjórana ofurtrú á sjálfum sér, sem leiði til slæmra ákvarðana.

Reyndin er oft sú að bónusakerfi og kaupaukar setja markmið sem auðvelt er að ná eða þeim er fylgt illa eftir. Skýrt dæmi um þetta er að forstjóri Walmart fékk 1,5 milljón dollara bónus við það að sala jókst um 1,8%, þrátt fyrir að markmiðið hafi verið um að ná 2% söluaukningu. Þar að auki hafa tæplega 40% af þeim forstjórum sem hafa haft hæst laun síðustu 20 árin verið reknir ýmist vegna fjársvika, eða mistaka í starfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×