Viðskipti erlent

Líkur á bankakreppu í Kína hafa aukist til muna

Birgir Olgeirsson skrifar
Álagið á kínverska bankakerfið sagt þrefalt yfir hættumörkum.
Álagið á kínverska bankakerfið sagt þrefalt yfir hættumörkum.
Líkur á bankakreppu í Kína hafa aukist til muna að mati Alþjóðagreiðslubankans í Basel (BIS). Bankinn segir frá þessu í ársfjórðungsúttekt sinni en þar kemur fram að  álagið á kínverska bankakerfið sé þrefalt yfir hættumörkum þegar skuldir eru bornar saman við verga landsframleiðslu. Á fyrsta ársfjórðungnum í ár var bilið 30,1 en hættumörkin miðast við 10. Fyrir ári síðan var bilið í Kína 25,4.

Alþjóðagreiðslubankinn reiknar þetta bil með því að horfa til útlána í samhengi við stærð efnahagskerfisins. Þegar mikill munur er á milli þessara tveggja þátta telur Alþjóðagreiðslubankinn miklar líkur á bankakreppu.

Alþjóðagreiðslubankinn í BAsel var stofnaður árið 1930 og er elsta alþjóðlega fjármálastofnunin í heimi. Hann er í eigu fjölmargra banka og er í senn banki seðlabankanna og sagður mikilvæg rannsókna- og greiningastofnun á sviðum sem lúta að starfsemi seðlabanka, ekki síst peningamálum og varðandi fjármálastöðugleika. Sjá nánar á vef Seðlabanka Íslands hér.

Í ársfjórðungsuppgjöri bankans kemur fram að það hafi komið mörgum á óvart hversu fljótt markaðir náðu að jafna sig á ákvörðun Breta að yfirgefa Evrópusambandið. „Í ljósi þeirrar pólitísku og efnahagslegu óvissu sem fylgdi þessari þjóðaratkvæðagreiðslu,“ er haft eftir Claudio Borio hjá Alþjóðagreiðslubankanum á vef breska ríkisútvarpsins BBC.

Hann varar hins vegar við því að alþjóðamarkaðir séu enn í viðkvæmir vegna Brexit






Fleiri fréttir

Sjá meira


×