Viðskipti innlent

Launavísitalan hækkað um 0,6 prósent

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/valli
Launavísitala í október hækkaði um 0,6 prósent frá fyrri mánuði og er núna 493,8 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,6 prósent.

Þá hefur vísitala kaupmáttar launa í október hækkað um 0,5 prósent frá því í september og er nú 119,7 stig. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,6 prósent.  








Fleiri fréttir

Sjá meira


×