Viðskipti innlent

Lauf forks í sókn

Samúel Karl Ólason skrifar
Á þessari ljósmynd Arnolds Björnssonar af forystusveit Bláa lóns þrautarinnar má sjá að Lauf gafflar eru í miklum meirihluta.
Á þessari ljósmynd Arnolds Björnssonar af forystusveit Bláa lóns þrautarinnar má sjá að Lauf gafflar eru í miklum meirihluta.
Nýsköpunarfyrirtækið Lauf forks hf. lauk í síðastliðinni viku hlutafjáraukningu að andvirði ríflega hundrað milljónir króna. Því fjármagni er ætlað að standa undir stóraukinni markaðssókn og vöruþróun. Lauf forks hannar, framleiðir og selur léttasta reiðhjólademparagaffal í heimi samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.

Nú þegar hefur Lauf forks gert samninga við dreifingaraðila í ríflega 30 löndum og selur jafnframt beint til hjólreiðamanna og keppnisaðila um allan heim.

„Fjallahjólagaffall fyrirtækisins, Lauf Trail Racer, öðlast jafnt og þétt viðurkenningu hjólaheimsins og hefur skilað verðlaunasætum í fjölda hjólakeppna hér heima og erlendis. Þess má geta að yfirgnæfandi meirihluti fremstu hjólreiðamanna í Bláa lóns þrautinni sem fór fram 13. júní sl. völdu að hjóla á gafflinum, þ.á.m. sigurvegararnir í kvenna- og karlaflokki, María Ögn Guðmundsdóttir og Daninn Sören Nissen, sem slógu bæði brautarmet í keppninni.“

Í byrjun júní var gengið frá samstarfssamningi við bandaríska hjólaframleiðandann Borealis Bikes um að fyrirtækið bjóði upp á nýjan „fatbike“ gaffal Lauf forks, sem valkost fyrir öll sín reiðhjól.

„Þar er von og trú fyrirtækisins að þessi samningur ryðji brautina fyrir samstarf við aðra hjólaframleiðendur.“

Nú eru á fjórða tug gesta á Íslandi á vörukynningu Lauf forks.

„Þar sem Lauf Carbonara gaffallinn verður formlega kynntur og önnur ný útgáfa demparagaffalsins, sem leynd hvílir enn yfir. Gestirnir eru blaðamenn helstu hjólatímarita og -vefsíða í heimi, auk dreifingaraðila víðs vegar að og fulltrúa tveggja hjólaframleiðenda. Þeim mun gefast kostur á að prófa vörurnar við kjöraðstæður í Þórsmörk, íshellinum í Langjökli.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×