Viðskipti innlent

Lánshæfismat ríkissjóðs hækkar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson var fjármálaráðherra á síðasta kjörtímabili en hér tekur Benedikt Jóhannesson við lykunum að fjármálaráðuneytinu í vikunni þegar ný ríkisstjórn tók við.
Bjarni Benediktsson var fjármálaráðherra á síðasta kjörtímabili en hér tekur Benedikt Jóhannesson við lykunum að fjármálaráðuneytinu í vikunni þegar ný ríkisstjórn tók við. vísir/ernir
Matsfyrirtækið Standard & Poors hækkaði í dag lánshæfismat ríkissjóðs og er sjóðurinn nú kominn í flokk A- hjá fyrirtækinu. Á vef fjármálaráðuneytisins kemur fram að meginástæða hækkunarinnar sé sterkari ytri staða en ríkissjóður var áður í flokknum BBB+.



Standard & Poors segir að sterk erlend staða Íslands sé einn af lykilþáttum hærra lánshæfismats nú. Þannig hafi verið mikill afgangur af viðskiptajöfnuði auk þess sem óskuldsettur hluti gjaldeyrisforðans hafi vaxið mikið síðasta ár.

„Greiðslujöfnuður Íslands hefur farið fram úr væntingum S&P. Þá vega mikill hagvöxtur, lækkun skuldahlutfalls og sterk staða ríkisfjármála, einnig þungt í hækkun matsins. Einnig bendir lánshæfisfyrirtækið á að Ísland er með háar þjóðartekjur á mann,“ segir á vef fjármálaráðuneytisins.

Þá kemur þar jafnframt fram að matsfyrirtækið gæti hækkað lánshæfismatið enn frekar ef fjármagnshöft verða losuð að fullu „án þess að að fjármálalegum stöðugleika verði ógnað eða hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð.

 

Lánshæfismatið gæti einnig hækkað frekar ef skuldahlutfall hins opinbera lækkar hraðar en gert er ráð fyrir í mati S&P.“

Lánshæfismatið geti hins vegar lækkað ef nýlegar launahækkanir á vinnumarkaði leiða af sér ofhitnun hagkerfisins sem myndi hafa aukna áhættu í för með sér fyrir peninga-og ríkisfjármál sem og erlenda stöðu þjóðarbúsins.

„Að sama skapi gæti frekari losun fjármagnshafta með óskipulegum hætti sem hefði neikvæð áhrif á fjármálakerfið, haft áhrif til lækkunar.

Fyrirtækið hækkaði síðast lánshæfismat ríkissjóðs í janúar 2016. Ríkissjóður er nú metinn í A flokki hjá bæði Moody´s og S&P, en ríkissjóður var síðast metinn í A flokki hjá S&P í október 2008.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×