Viðskipti erlent

Lánshæfismat Grikkja fallið í ruslflokk

ingvar haraldsson skrifar
Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikkja, fyrir miðri mynd. Gríska ríkið þarf nauðsynlega að finna lausn á skuldavanda sínum á næstunni, annars blasir gjaldþrot við.
Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikkja, fyrir miðri mynd. Gríska ríkið þarf nauðsynlega að finna lausn á skuldavanda sínum á næstunni, annars blasir gjaldþrot við. vísir/
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poors´s hefur lækkað lánshæfismat gríska ríkisins niður í ruslflokk. The Telegraph greinir frá.

Fyrirtækið telur skuldastöðu gríska ríkisins vera ósjálfbæra þar sem stefni í 1,5 prósenta neikvæðan hagvöxt á þessu ári. Því verði ómögulegt verði fyrir gríska ríkið að skila afgangi líkt og áætlanir gera ráð fyrir. Lánshæfiseinkunn Grikkja var lækkuð úr B- í CCC+ með neikvæðar horfur.

Fjárlagahalli gríska ríkisins nam 3,5 prósentum af landsframleiðslu árið 2014 sem er langt umfram áætlun um 0,8 prósenta halla. Halli á rekstri gríska ríkisins hefur þó minnkað að undanförnu. Gríska ríkið var rekið með 1 milljarðs evra halla í janúar og febrúar ef vaxtagreiðslur eru undanskildar samanborið við 3,17 milljarða evra halla á sama tímabili árið 2014.



Lausafé að klárast og gjaldþrot yfirvofandi


Lausafé gríska ríkisins er við það að klárast en landið hefur ekki fengið ný lán síðan í ágúst á síðasta ári. Því var farið fram á við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að fá að fresta lánagreiðslum til sjóðsins en stórir gjalddagar við sjóðinn verða í maí og júní. Því var hafnað samkvæmt frétt Financial Times.

Ávöxtunarkrafa á grísk ríkiskuldabréf hefur hækkað verulega undanfarna daga og hefur ekki verið hærri síðan árið 2012 þar sem fjárfestar óttast gjaldþrot gríska ríkisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×