Viðskipti innlent

Kringlan tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alls voru 232 þátttakendur frá 25 löndum í en keppt er í átta flokkum.
Alls voru 232 þátttakendur frá 25 löndum í en keppt er í átta flokkum. Vísir/GVA
Verslunarmiðstöðin Kringlan hefur verið tilnefnd til  alþjóðlegra verðlauna frá ICSC, sem eru alþjóðleg samtök verslunarmiðstöðva en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kringlunni.

Kringlan hlaut tilnefningu í flokknum samfélagsleg ábyrgð, fyrir markaðsaðgerðir vegna  pakkasöfnunar fyrir jólin en þá var nýtt leikja-app, Kringlujól, kynnt sem viðbót við pakkasöfnun með stuðningi verslana í Kringlunni.

Með pakkasöfnuninni voru gestir Kringlunnar hvattir til að kaupa eina aukajólagjöf og gefa hana í söfnun fyrir Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands. Að auki var hægt að safna pökkum í gegnum leikja-appið Kringlujól og gáfu verslanir í Kringlunni pakka sem leikmenn söfnuðu. Leikurinn efldi söfnunina til muna og um 5.000 gjafir söfnuðust sem var metárangur.

Að sögn Baldvinu Snælaugsdóttur, markaðsstjóra Kringlunnar, er þessi tilnefning mikill heiður „Við erum himinlifandi með tilnefninguna enda gríðarleg viðurkenning fyrir okkur og þá fjölmörgu kaupmenn i Kringlunni sem að verkefninu komu og efldu það til muna. Viðbrögð Íslendinga við söfnuninni voru ótrúlega góð og hafa nú vakið athygli út fyrir landsteinana.“

Baldvina bætir því við að verðlaun frá ICSC (International Council of Shopping Centers) séu mjög eftirsótt meðal annars vegna þess að samtökin eru alþjóðlegt fagráð verslunarmiðstöðva með yfir 55 þúsund meðlimi í 90 löndum.

Alls voru 232 þátttakendur frá 25 löndum í en keppt er í átta flokkum. Verkefnin sem eru tilnefnd í sama flokki og Kringlan koma frá öllum heimshornum, allt frá Tyrklandi til Suður-Afríku.

„Tilnefningarnar eru mikil viðurkenning  fyrir markaðsstarf Kringlunnar sem sýnir að starfsemin er í fararbroddi og stenst fyllilega samanburð á alþjóðlegum vettvangi,“ segir Baldvina. Kringlan hlaut verðlaun árið 2014 fyrir leikinn Kringlukröss. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á ráðstefnu ICSC í Kaupmannahöfn í byrjun júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×