Viðskipti erlent

Kínverskir fjárfestar í viðræðum um kaup á Glitni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VÍSIR/VALLI
Hópur kínverskra fjárfesta er í viðræðum við slitastjórn Glitnis um að eignast hlut hennar í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í frétt á vef Reuters í dag sem hefur þetta eftir innanbúðarmanni í fjármálaráðuneytinu.

Heimildaraðili fréttastofunnar segir að meðal áhugasamra fjárfesta væru aðilar á vegum kínverska bankans ICBC, tryggingafélagsins China Life Insurance Company og kínversks fjárfestingasjóðs.

Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, segir við Reuters að viðræðurnar væru á frumstigi en vildi ekkert gefa upp um hvaða aðilar ættu í hlut.

„Það er gaman að sjá áhuga á bankanum. Það sýnir að erlendir fjárfestar hafa sterka trú á íslensku efnahagslífi og að landið geti losnað úr gjaldeyrishöftum,“ er haft eftir Steinunni. Bankinn er í 95% eigu ISB holding og var þessi hlutur félagsins metinn á 165 milljarða króna í mars á þessu ári.

ICBC bankinn er sá stærsti í heiminum, hann er einn fjögurra banka sem er í eigu kínverska alþýðulýðveldisins.  China Life Insurance Company er staðsett í Peking og er stærsta tryggingafélagið í Kína á sviði líftrygginga.

Leiðrétt kl. 20:00

MBL greindi fyrst frá áhuga fjárfestana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×