Viðskipti innlent

Keyrðu fyrstu iPhone 6 símana að dyrum

Samúel Karl Ólason skrifar
Þessi þurfti að bíða eftir nýja símanum í fimm mínútur.
Þessi þurfti að bíða eftir nýja símanum í fimm mínútur. Mynd/Pressphotos.biz/Geirix
Verslunin iStore stóð fyrir skemmtilegri uppákomu þegar nýjustu iPhone 6 símarnir fóru í sölu á miðnætti í nótt. Fyrirtækið fékk til liðs við sig ofurhetjur sem afhentu símana til viðskiptavina sem höfðu gengið frá kaupunum fyrr um daginn.

Ofurhetjurnar mættu fimm mínútum of snemma í gærkvöldi til fyrsta viðskiptavinarins sem þurfti þó að bíða til miðnættis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×