Viðskipti innlent

Kaupþing selur Lehman Brothers bréfin

Skilanefnd Kaupþings hefur selt skuldabréf gefin út af Lehman Brothers og fékkst a.m.k. 30% af nafnverði bréfanna í sölunni. Bréfin fékk skilanefndin í hendur eftir samkomulag við viðskiptavini Acta Kapitalforvalting í Svíþjóð sem keyptu bréfin upphaflega með lánum frá Kaupþingi í Svíþjóð.

Fjallað er um málið í uppfærðri skýrslu skilanefndarinnar til kröfuhafa bankans fyrir júnímánuð. Þegar Kaupþing fékk bréfin aftur í hendur fyrir meir en ári síðan var óljóst hvert virði þeirra var en risavaxið gjaldþrot Lehman Brothers haustið 2008 er oft talið marka upphafið að fjármálakreppunni sem síðan reið yfir heiminn. Um tíma var talið að verðmæti skuldabréfanna væri aðeins 10% af nafnverði.

Skilanefndin hefur síðan fylgst náið með verðþróuninni á þessum bréfum og í vor var ákveðið að fá Morgan Stanley til þess að sjá um sölu þeirra til fjárfesta. Þeirri sölu er nú lokið.

Upphaf málsins má rekja til þess að nokkru fyrir fall Lehman Brothers keyptu efnaðir Svíar skuldabréf í bankanum í gegnum Acta en með láni frá Kaupþingi . Alls var um 3.300 Svía að ræða og lánin sem þeir tóku til kaupanna námu allt að 350.000 sænskum kr. á einstakling. Heildarupphæðin nam um 1,3 milljörðum sænskra kr.

Kaupþing gerði þessum viðskiptavinum tilboð fyrr í vetur um að þeir greiddu 60% af eftirstöðvum lánanna og afhentu Kaupþingi Lehman skuldabréfin. Einnig féllu þeir frá rétti til að lögsækja bankann eða Acta vegna viðskiptanna. Um 85% Svíanna tóku tilboðinu en þeir skulduðu samtals milljarð sænskra kr. hjá Kaupþingi sem fékk því  600 milljónir sænskra kr. endurgreiddar eða um 11 milljarða kr.

Í skýrslu skilanefndarinnar er ekki greint frá því hve mikið fé hafi fengist fyrir skuldabréfin en reikna má út að nefndin komi næstum út á sléttu eða jafnvel með hagnað af þessum viðskiptum.

Í frétt á visir.is af þessu máli í mars í fyrra segir að þeir sem ekki hafi tekið tilboði Kaupþings ætli sér í hópmálssókn gegn Acta og Kaupþingi vegna málsins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×