Viðskipti innlent

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann rýrnar um 0,7% milli ára

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/stefán
Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust árið 2013 um 4,2% frá fyrra ári. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 3,2% milli ára en kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann dróst saman um 0,7%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs rekstrarafgangs einstaklingsfyrirtækja en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum.

Heildartekjur heimilanna jukust um 5,9% frá árinu 2012 til 2013. Þar af var 7,5% aukning á heildarlaunatekjum, 5,4% aukning á heildareignatekjum og 3,6% aukning á rekstrarafgangi einstaklingsfyrirtækja.

Heildartilfærslutekjur jukust um 0,8% milli ára. Heildareigna- og tilfærsluútgjöld jukust um 8,4% milli ára, vegna 9,5% meiri eignaútgjalda og 8,2% aukningar tilfærsluútgjalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×