Golf

Karlalandsliðið í golfi einu skrefi frá sæti í efstu deild

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku strákarnir náðu góðu skori í dag.
Íslensku strákarnir náðu góðu skori í dag. mynd/gsí
Íslenska karlalandsliðið er einu skrefi frá því að tryggja sér sæti á meðal þeirra bestu í Evrópu.

Ísland endaði í efsta sæti eftir höggleikinn í 2. deild sem fram fer í Lúxemborg. Íslensku leikmennirnir bættu sig um átta högg frá því á fyrsta hringnum og léku samtals á 708 höggum. Wales varð í 2. sæti og þar á eftir komu Tékkar og Slóvenar.

Þessi fjögur lið leika í undanúrslitum á morgun og sigurliðin í þeim viðureignum eru örugg með eitt af þremur sætunum sem tryggja sæti í efstu deild að ári.

Ísland mætir liði Slóveníu og með sigri í þeim leik gulltryggir Ísland sér sæti í efstu deild að ári. Wales og Tékkland mætast í hinni undanúrslitaviðureigninni.

Skor íslenska liðsins í dag var eftirfarandi:

Gísli Sveinbergsson 67 högg -5

Haraldur Franklín Magnús 67 högg -5

Guðmundur Ágúst Kristjánsson 70 högg -2

Andri Þór Björnsson 71 högg -1

Egill Ragnar Gunnarsson 75 högg +3

Arnór Snær Júlíusson 75 högg +3




Fleiri fréttir

Sjá meira


×