Viðskipti innlent

Kalla inn Indverskt Dukkah með salthnetum og karríi

Atli Ísleifsson skrifar
Yndisauki hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ákveðið að innkalla vöruna.
Yndisauki hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ákveðið að innkalla vöruna. Mynd/Reykjavíkurborg
Yndisauki hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ákveðið að innkalla frá neytendum Indverskt Dukkah með salthnetum og karríi vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvaldar (jarðhnetur).

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að ofnæmis- og óþolsvaldurinn jarðhnetur sé vanmerktur sem salthnetur á umbúðum vörunnar og sé því um að ræða matvæli sem geta valdið neytendum heilsutjóni.

„Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Yndisauki

Vöruheiti:  Indverskt Dukkah með salthnetum og karríi

Strikanúmer:  5694230012213

Umbúðir: Dós

Nettómagn:  150 g

Best fyrir:  Allar „best fyrir“ dagsetningar.

Framleiðsluland:  Ísland

Dreifing: Melabúðin Hagamel, Fjarðarkaup, Mosfellsbakaríi Háaleitisbraut og Háholti, Heilsuhúsinu Lágmúla, Heilsuhúsinu Smáranum, Heilsuhúsinu Laugavegi, Heilsuhúsinu Kringlunni, Hagkaupsverslunum og Bakaríinu við brúnna á Akureyri.

Þeir neytendur sem eiga umræddar vöru og eru með ofnæmi fyrir jarðhnetum eru beðnir að neyta hennar ekki og farga henni eða skila til Yndisauka, Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.

Nánari upplýsingar fást hjá Yndisauka í síma 511 8090.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×