Heilsa

Jóga getur bætt árangur í íþróttum

Elísabet Margeirsdóttir skrifar
Margir vita að jóga er góð andleg heilsurækt en ekki allir sem vita að það er kröftug líkamsrækt sem getur bætt árangur í íþróttum. Ég heimsótti Sólveigu Þórarinsdóttur jógakennara, en hún opnaði jógastöðina Sólir á dögunum í gömlu fiskvinnsluhúsi á Grandanum og er hennar slagorð að allir geti fundið jóga við sitt hæfi.

Stöðin býður upp á fjölbreytta töflu með yfir 30 opna tíma á viku ásamt hugleiðslutímum og reglulegum námskeiðum. Heitt jóga verður í fyrirrúmi en þar verða einnig ýmsar nýjungar eins og pop up jóga á laugardögum og sérsniðnir tímar fyrir íþróttafólk. Þar verður einnig jóga fyrir hlaupara og kíktum við í einn slíkan tíma í vikunni og var það bráðskemmtileg reynsla og kærkomin tilbreyting frá hlaupunum. 


Tengdar fréttir

Fyrsta þríþraut sumarsins fór af stað í snjókomu

Glæsileg þríþraut var haldin í Kópavogi í dag og einnig var boðið upp á fjölskylduþríþraut. Aðstæður voru skrautlegar til að byrja með en það snjóaði þegar fyrsti hópur var ræstur.

Hlaupa hringveginn á mettíma gegn sjálfsvígum ungra manna

Tólf manna hópur ætlar að hlaupa hringveginn til að vekja athygli á hárri tíðni sjálfsvíga ungra karla á íslandi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Geðhjálp og Rauða Krossinn undir yfirskriftinni Útme'ða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×