Golf

Jason Day sækir að Jimmy Walker

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jason Day lék þriðja hringinn á þremur undir pari.
Jason Day lék þriðja hringinn á þremur undir pari. vísir/epa
Bandaríski kylfingurinn Jimmy Walker er með eins höggs forystu á Jason Day fyrir lokahringinn á PGA meistaramótinu í golfi.

Walker lék þriðja hringinn á tveimur höggum undir pari og er samtals á 11 höggum undir pari.

Day, efsti maður heimslistans og sigurvegarinn á PGA meistaramótinu í fyrra, lék þriðja hringinn á þremur undir pari og er samtals á 10 höggum undir pari.

Brooks Koepka frá Bandaríkjunum og Henrik Stenson frá Svíþjóð eru svo jafnir í 3.-4. sæti á níu höggum undir pari.

Bein útsending frá lokahringnum hefst klukkan 18:00 á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir

Jimmy Walker enn með forystu

Kylfingar á PGA meistaramótinu í golfi keppast nú við að klára þriðja hringinn á mótinu.

Streb komst upp að hlið Walker

Jimmy Walker og Richard Streb frá Bandaríkjunum eru efstir og jafnir eftir annan keppnisdaginn á PGA-Meistaramótinu í golfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×