Íslenskar stúlkur plötuðu ferðamann úr fötunum 14. desember 2012 13:24
Á dögunum var tilkynnt um nakinn mann á hlaupum á grasblettinum við Stjórnarráðið samkvæmt frásögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og má finna á Facebook síðu embættisins. Þar kemur fram að eftir að maðurinn hafði hlaupið einhverja hringi náðu lögreglumenn að hafa hendur í hári hans enda fátt annað að grípa í svo vel færi. Þarna var á ferðinni ungur ferðamaður og var hann á sokkunum einum fata. Hann var mjög miður sín þegar komið var í lögreglubifreiðina og gaf þær skýringar að hann hefði hitt íslenskar stúlkur á bar í borginni. Maðurinn sagði að stúlkurnar hefðu manað hann til að fara úr fötunum og hlaupa um á umræddu grasi, en þær staðhæft að slíkt væri algeng hefð á Íslandi og í einskærri hjálpsemi hafi hafi þær boðist til að halda á fötum hans á meðan hann þreytti hlaupið. Þær létu sig hins vegar hverfa í miðju hlaupinu svo ungi ferðamaðurinn var bæði kaldur og úrræðalaus á hlaupum í leit að fötunum. Var honum komið á lögreglustöðina vafinn teppi en hann átti í erfiðleikum með að framvísa skilríkjum enda veskið í buxunum, sem voru í höndum stúlknanna. Sagan endaði samt betur á horfðist í fyrstu því að er honum var skilað á hótel sitt, biðu fötin hans í móttökunni en stúlkurnar horfnar á braut.
Mest lesið Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Innlent „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Erlent Fleiri fréttir Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Sjá meira