Viðskipti innlent

Íslendingar setja tré fyrr upp nú en áður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hagnaður af sölu trjánna sem Heiða Ósk selur, rennur að hluta til í sjóði Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Hún segir að margir komi til að styrkja málstaðinn.
Hagnaður af sölu trjánna sem Heiða Ósk selur, rennur að hluta til í sjóði Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Hún segir að margir komi til að styrkja málstaðinn. fréttablaðið/stefán
Jólatréssalan hefur gengið vel fyrir þessi jólin og er langt gengið á lagerinn víða. Heiða Ósk Gísladóttir hefur staðið vaktina í Jólatréssölunni Landakoti.

Heiða Ósk segir að flestar stærðir séu uppseldar. Aðspurð segir hún að fólk hafi verið fyrr á ferðinni í ár að kaupa jólatré en í fyrra. Það hafi verið mikið að gera í fyrra. „Mér finnst fólk líka vera að kaupa stærri tré núna,“ segir Heiða Ósk.

Kristinn Einarsson í Húsasmiðjunni tekur undir með Heiðu Ósk og segir hann söluna hafa gengið mjög vel. Hann vill þó ekki segja hversu mörg tré hann hefur selt. „Við erum með svipað magn og undanfarin ár,“ segir hann.

Kristinn segir fólk fyrr á ferðinni í ár að kaupa tré en oft áður. „Og það er líka fyrr að skreyta. Þetta sjáum við í sölu á jólatrésfótum og skrauti. En hérna áður fyrr skreyttu allir á Þorláksmessu,“ segir Kristinn. Hann telur að þessi breyting sé tilkomin vegna erlendra áhrifa.

„Og sérstaklega frá Ameríku. Þar er fólk að skreyta jafnvel bara í upphafi aðventu. Svo kannski finnst fólki bara gott að vera tímanlega í því. Jólatré er náttúrlega gríðarmikið skraut og það er fyrirferðarmikið í stofunni. Fólkið vill bara fá jólastemninguna fyrr,“ segir Kristinn.

Hann telur að álíka mikið hafi selst af gervitrjám í ár og í fyrra. Normannsþinurinn sé alltaf vinsælasta lifandi jólatréð.

Kristinn tekur einnig undir með Heiðu að fólk kaupi stærri jólatré nú en oft áður. „Stærri jólatré eru að seljast meira en þau gerðu áður fyrr,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×