Viðskipti innlent

Íslendingar kaupa húsgögn og heimilistæki sem aldrei fyrr

Samúel Karl Ólason skrifar
Aukin greiðslukortavelta er talin til marks um aukna einkaneyslu.
Aukin greiðslukortavelta er talin til marks um aukna einkaneyslu. Vísir/Daníel
Íslendingar virðast nú endurnýja húsgögn og heimilistæki sem aldrei fyrr. Sala á húsgögnum var fjórðungi meiri í mars en hún var í mars í fyrra og raftækjasala jókst um tæp 40 prósent. Mest var aukningin í sölu minni raftækja eða 59 prósent og í sölu snjallsíma, 52 prósent.

Samkvæmt Rannsóknasetri verslunarinnar á Bifröst var raunvelta dagvöruverslana jafn mikil á fyrstu þremur mánuðum þessa árs og hún var á sama tíma í fyrr. Þannig sést að ekki hefur átt sér stað samdráttur í matarinnkaupum í kjölfar hækkunar virðisaukaskatts á matvæli sem settur var á um áramótin.

Verð raftækja er nú 13,5 prósentum lægra en það var í fyrra og svo virðist sem að lækkun vörugjalda á þau hafi enn frekar aukið sölu þeirra eftir áramót. Á fyrstu þremur mánuðum ársins jókst sala raftækja um 34 prósent af raunvirði. Lítill vöxtur er í byggingavöruverslun og virðist sem að vörugjaldalækkunin hafi ekki komið fram þar með sama hætti og í raftækjum.

Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 8,7 prósent í mars frá mars í fyrr og erlend greiðslukortavelta jókst um 42,5 prósent. Greiningaraðilar telja þetta til merkis um aukna einkaneyslu. Sala áfengis jókst um 5,9 prósent og fataverslun um 4,1 prósent.

Velta húsgagnaverslana var 24,6 prósentum meiri á föstu verðlagi og jókst um 20 prósent á breytilegu verðlagi. Velta sérverslana jókst um 18,7 prósent og velta sérverslana með skrifstofuhúsgögn jókst um 13,0 prósent á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur lækkað um 3,7 prósent á síðustu 12 mánuðum.

Velta í sölu á tölvum jókst um 18,4 prósent í mars á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og farsímasala jókst um 52,2 prósent. Sala minni raftækja, svokallaðra brúnvara, jókst um 58,6 prósent á föstu verðlagi en sala stærri raftækja, svokallaðra hvítvara, jókst um 34,4 prósent á milli ára. Verð á raftækjum lækkaði á síðustu 12 mánuðum um 13,5 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×