Viðskipti innlent

Íslandsbanki valinn besti bankinn á Íslandi af Euromoney

Randver Kári Randversson skrifar
Vísir/Vilhelm
Alþjóðlega fjármálatímaritið Euromoney hefur valið Íslandsbanka besta bankann á Íslandi annað árið í röð. Einnig hefur Íslandsbanki verið valinn besti fjárfestingabankinn á Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem verðlaun eru veitt í þeim flokki hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Tímaritið Euromoney útnefnir árlega bestu bankana í tæplega 100 löndum og veitir þeim viðurkenninguna Awards for Excellence. Euromoney leit til ýmissa þátta í rekstri íslensku bankanna við val sitt, meðal annars arðsemi eigin fjár, gæði lánasafns, árangur í hagræðingu og markaðshlutdeildar á ýmsum þjónustuþáttum og sviðumEinnig var litið til hlutdeildar í nýskráningum og veltu á mörkuðum við val á besta fjárfestingabankanum.

„Við erum stolt af því að vera valinn besti bankinn á Íslandi annað árið í röð. Einnig gleður það okkur að vera valinn besti fjárfestingabankinn á Íslandi en með sterkum fjárfestingabanka tekur bankinn þátt í enduruppbyggingu íslensks fjármálamarkaðar, “ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Íslandsbanki hafi frá stofnun unnið samkvæmt skýrum og mælanlegum markmið fyrir bankann í heild og einstaka svið hans. Markmið bankans taki mið af þeirri framtíðarsýn að vera fremstur í  þjónustu, vera hreyfiafl í uppbyggingu fjármálamarkaðar og tryggja hagkvæman og heilbrigðan rekstur bankans. Íslandsbanki var efstur banka í Íslensku ánægjuvoginni fyrir árið 2013 og sýni kannanir meðal einstaklinga og fyrirtækja að bankinn þyki faglegastur meðal banka á Íslandi.

„Öflug fjárfestingabankastarfsemi er nauðsynleg til að styðja við endurreisn íslensks atvinnulífs og höfum við haft það að leiðarljósi við uppbyggingu fjárfestingabankastarfsemi innan Íslandsbanka. Það er heiður að fá þessa mikilvægu viðurkenningu á vegferð okkar að skapa alþjóðlega samkeppnishæfan fjármálamarkað á Íslandi sem er vel í stakk búinn til þess að styðja við frekari vöxt og nýsköpun meðal íslenskra fyrirtækja,“ segir Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri Markaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×