Golf

Ísland mætir Frakklandi á EM í golfi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðrún Brá hefur spilað best af íslensku keppendunum á EM.
Guðrún Brá hefur spilað best af íslensku keppendunum á EM. vísir/anton
Íslenska kvennalandsliðið í golfi leikur um sæti 9.-16. á Evrópumóti áhugakylfinga sem fram fer á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Ísland endaði í 15. sæti eftir höggleikinn sem fram fór síðastliðna tvo daga en íslenska liðið náði að bæta árangur sinn mikið á öðrum keppnisdeginum.



Sjá einnig: Signý valdi svo sannarlega tímann til að fara holu í höggi

Ísland mætir hinu gríðarlega sterka franska liði en Frakkar hafa unnið þetta mót í síðustu tvö skipti sem það hefur farið fram.

Átta efstu þjóðirnar leika í A-riðli og eiga möguleika á að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn. Athygli vekur að Frakkland, sem hefur unnið þetta mót í síðustu tvö skipti sem það hefur farið fram, endaði í 10. sæti og getur því ekki varið titilinn.

Liðin sem leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn eru: Spánn, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland, Danmörk, England, Sviss og Finnland.

Liðin sem mætast í fyrstu umferð eru: Spánn (1) - Finnland (8), Noregur (2) - Sviss (7), Svíþjóð (3) - England (6). Þýskaland (4) - Danmörk (5.)

Lið sem leika um sæti 9.-16. eru: Írland, Frakkland, Ítalía, Skotland, Holland, Belgía, Ísland, Slóvenía.

Í fyrstu umferð mætast: Írland (9.) - Slóvenía (16.), Frakkland (10.) - Ísland (15.). Ítalía (11.) - Belgía (14.), Skotland (12.) - Holland (13.).

Liðin sem leika um sæti 17.-20. eru: Tékkland, Austurríki, Wales og Pólland.

Í fyrstu umferð mætast: Tékkland (17.) - Pólland (20.), Austurríki (18.) - Wales (19.)


Tengdar fréttir

Misjafnt gengi á fyrsta degi á EM

Íslensku keppendurnir á EM kvennalandsliða í golfi hafa lokið keppni í dag. Leikið er á Urriðavelli en mótinu lýkur á laugardaginn.

Það er allt of gott veður

Evrópumót kvennalandsliða í golfi hefst á Urriðavelli í dag. Þetta er stærsta alþjóðlega golfmót sem hefur verið haldið á Íslandi. Landsliðsþjálfarinn, Úlfar Jónsson, setur markið hátt fyrir mótið stóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×