Erlent

Íslamska ríkið grunað um árásina

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Glerbrot á gólfi Ataturk-flugvallar áður en þau voru hreinsuð upp.
Glerbrot á gólfi Ataturk-flugvallar áður en þau voru hreinsuð upp. Nordicphotos/AFP
Þjóðarsorg var um allt Tyrkland í gær. Allt að 41 er nú talinn látinn eftir skot- og sprengjuárás á Atatürk-flugvöllinn í Istanbúl, fjölmennustu borg landsins, í fyrradag. Þar af voru 13 ferðamenn. 239 eru særðir eftir árásina, þar af liggja 109 enn á spítala. Frá þessu greindi Vasip Sahin, borgarstjóri Istanbúl, í gær.

Hreingerningarstarfsfólk vann í alla fyrrinótt við að sópa upp glerbrotum á meðan viðhaldi var einnig sinnt á gólfflísum og ýmsum raftækjum. Þá gekk þungvopnað öryggisgæslulið um flugvöllinn í gær.

Þrír hryðjuverkamenn gerðu árás á komusal flugvallarins og bílastæði við salinn með byssum. Þegar löggæslumenn mættu á vettvang og skutu á mennina sprengdu þeir sig í loft upp. Ekki hafa verið borin kennsl á lík árásarmannanna. Þó segist CNN hafa heimildir fyrir því að enginn þeirra hafi verið tyrkneskur ríkisborgari.

Binali Yildirim, forsætisráðherra Tyrklands, sagði við fjölmiðla í gær að upplýsingar frá rannsóknarlögreglu bentu til þess að hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki beri ábyrgð á árásinni. Það sé þó ekki víst enda rannsókn ekki lokið. „Hryðjuverkamennirnir komu til flugvallarins í leigubíl og réðust síðan á fólk. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þeir hafi skotið úr byssum sínum allir þrír og síðan sprengt sig í loft upp,“ sagði Yildirim. Þá greinir CNN frá því að heimildarmenn stöðvarinnar innan CIA segi Íslamska ríkið líklega hafa staðið að árásinni eða að minnsta kosti hóp sem sæki innblástur til Íslamska ríkisins.

Recep Tayyip Erdoganvísir/nordic photos
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, kallaði í gær eftir því að alþjóðasamfélagið sameinaði krafta sína til að berjast gegn hryðjuverkum í kjölfar árásarinnar. „Í augum hryðjuverkasamtaka er enginn munur á Istanbúl og Lundúnum, Ankara og Berlín, Izmír og Chicago eða Antalya og Róm,“ sagði forsetinn. „Ef gjörvallt mannkyn slæst ekki í för með okkur í baráttunni gegn hryðjuverkum munu mun verri árásir en við getum ímyndað okkur eiga sér stað.“

Átta hryðjuverkaárásir hafa verið gerðar í Tyrklandi frá áramótum, þar af fjórar í Istanbúl. Alls hafa um 140 fallið í árásunum átta, flestir í árásinni í fyrradag. Herskár armur Verkamannaflokks Kúrda (PKK) hefur lýst yfir ábyrgð á fimm árásum. Íslamska ríkinu hefur verið kennt um hinar þrjár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×