Erlent

ISIS lýsir yfir ábyrgð á skotárásinni

Samúel Karl Ólason skrifar
Um tveir þriðju af fórnarlömbum árásarmannsins voru erlendir aðilar frá Sádi-Arabíu, Marokkó, Líbanon, Líbýu og Ísrael.
Um tveir þriðju af fórnarlömbum árásarmannsins voru erlendir aðilar frá Sádi-Arabíu, Marokkó, Líbanon, Líbýu og Ísrael. Vísir/AFP
Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á skotárásinni í Istanbúl á Gamlárskvöld. Fjölmiðlar í Tyrklandi höfðu þegar sagt árásarmanninn sem myrti 39 manns á skemmtistað í Istanbúl á vera vígamann ISIS. Þar að auki er talið að maðurinn sé frá Úsbekistan eða Kirgistan.

Lögreglan hefur einnig fundið líkindi á milli árásarinnar á gamlárskvöld og árásarinnar á Ataturk-flugvellinum í Istanbúl í sumar, þar sem minnst 43 létust of fleiri en 200 særðust. Verið er að rannsaka hvort að sami hópur vígamanna hafi staðið að báðum árásunum.

Um tveir þriðju af fórnarlömbum árásarmannsins voru erlendir aðilar frá Sádi-Arabíu, Marokkó, Líbanon, Líbýu, Kanada og Ísrael. Minnst 69 eru særðir og þar af fjórir í alvarlegu ástandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×