Erlent

ISIS-liðar stefna að fjölgun árása í Evrópu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mohamed Lahouaiej-Bouhlel myrti 86 manns í Nice í Frakklandi í júlí.
Mohamed Lahouaiej-Bouhlel myrti 86 manns í Nice í Frakklandi í júlí. Vísir/AFP
Europol varar við því að vígamenn Íslamska ríkisins stefni að fleiri árásum í Evrópu í ljósi þess að þeir hafi tapað stórum hlutum af yfirráðasvæði sínu í Írak og Sýrlandi. Lögreglan varar við því að fjöldi vígamanna samtakanna reyni að snúa aftur til Evrópu. Þegar séu mögulega tugir þeirra komnir og tilbúnir til að fremja hryðjuverk.

Í nýrri skýrslu Europol er sérstaklega varað við skotárásum og bílasprengjum. Þá er talið líklegt að forysta ISIS muni færast til Líbýu.

Í skýrslunni er einnig tekið fram að hluti flóttamanna frá miðausturlöndum gætu orðið skotmörk vígamanna sem reyni að fá fólk til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin. Markmið þeirra sé að valda deilum meðal íbúa Evrópu og andstöðu gegn flóttafólki.

Ógnin er ekki einungis vegna vígamanna ISIS heldur einnig einstakra aðila sem aðhyllast boðskap samtakanna. Þar að auki sé Íslamska ríkið ekki ógnin heldur einnig al-Qaeda og systursamtök þeirra.

Í samtali við BBC segir Rob Wainwright, yfirmaður Europol, að aukin samvinna öryggisstofnanna Evrópu hafi þegar dregið úr möguleikum á stórum árásum, en ekki megi sofna á verðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×