Viðskipti erlent

iPhone 6 í búðir í maí - verður fáanlegur í öllum litum

iPhone 6, eins og The Sun sjá hann fyrir sér.
iPhone 6, eins og The Sun sjá hann fyrir sér.
Það er löngu orðið þekkt að Apple gefur reglulega út nýjar útgáfur af iPhone-símanum vinsæla, sem hefur selst eins og heitar lummur síðustu ár.

Nú fullyrðir breska blaðið The Sun að næsti sími frá fyrirtækinu komi út í maí næstkomandi. Það sem verður frábrugðið þessari útgáfu og þeim á undan er að þessi sími, iPhone 6, verður fáanlegur í mismunandi litum og stærðum.

Eins og Apple er von og vísa þá gefa þeir ekkert út fyrr en á frægum kynningum sínum, en blaðið hefur þessar upplýsingar eftir heimildarmönnum í tæknigeiranum.

Símarnir verða fáanlegir í stærðunum; Small, Medium og Large.

iPhone 5 síminn kom út í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×