Viðskipti erlent

iPhone 4 virkar hraðar með iOs 7.1

Jóhannes Stefánsson skrifar
iPhone 4 keyrir hægar á iPhone 7 en iPhone 6.
iPhone 4 keyrir hægar á iPhone 7 en iPhone 6. Vísir/Valgarður
iPhone 4 símar virka hraðar ef þeir eru uppfærðir úr iOs 7.0 í nýrri útgáfuna, 7.1. Þetta eru góðar fréttir fyrir eigendur þessarar gerðar iPhone síma.

Munurinn er þó ekki mikill og það munar til að mynda einungis tveimur sekúndum á ræsingu símans á milli þessara útgáfa stýrikerfisins.

Slæmu fréttirnar eru þó þær að iPhone 4 virkar mun hraðar með iOs 6 stýrikerfið heldur en nýja iPhone stýrikerfinu.

Hér fyrir neðan má sjá mælingar Cnet á því hversu fljótur iPhone 4 er að framkvæma ýmsar aðgerðir í símanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×