Viðskipti innlent

Ídýfur og kjötbollur Íslendinga í uppnámi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Íslendingar virðast nota TORO Púrrulaukssúpuna í allt milli himins og jarðar.
Íslendingar virðast nota TORO Púrrulaukssúpuna í allt milli himins og jarðar.
Framleiðandi TORO í Noregi hefur hætt framleiðslu á Púrrulaukssúpunni sinni í einstaklingspökkum. Á annað þúsund Íslendingar eru ósáttir við ákvörðunina og hvetja John Lindsay, umboðsaðila TORO hér á landi, til að leysa málið.

Greinilegt er að súpan er mikið notuð á íslenskum heimilum ef marka má fjölmörg skilaboð á stuðningssíðu súpunnar, „Við viljum Púrrulaukssúpu TORO aftur“.

Íslendingar spara ekki stóru orðin, tala um skandal og vilja súpuna í einstaklingspakkninum í hillur verslana ekki seinna en núna. Nokkur af fjölmörgum skilaboðum íslenskra aðdáenda súpunnar má sjá hér að neðan.

„Þessi súpa má ekki hverfa úr hillunum og VERÐUR að vera til þegar bera á fram ídýfur, algjört möst !!!“

„Hún er bara eitt af því sem er alveg nauðsynlegt að geta gripið til, m.a í bollur, ídýfur, eða bara að elda súpu í fljótheitum......... Við viljum súpuna aftur í neytendapakkningar.


Framleiðendur TORO í Noregi eru hættir að framleiða Púrrulaukssúpuna í einstaklingspökkum fyrir íslenskan markað.Pú...

Posted by Við viljum Púrrulaukssúpu TORO aftur on Tuesday, May 19, 2015
„Ídýfan, bollurnar og margir pottréttir verða ekki eins ef púrrulaukssúpuna vantar!“

„Ég sem er búin að gera dauðaleit af Púrrulaukssúpu í margar vikur - alltaf uppseld - skandall, nota hana í ýmsa rétti og stundum í ídýfu!“

Stofnandi Facebook-hópsins, sem ekki er nafngreindur, hvetur landsmenn til að láta vita af óánægju sinni en ekki gefa upp alla von.

„Forstjóri John Lindsay hf., sem er með umboðið fyrir Toro á Íslandi, segir mjög góðar líkur á því að það verði aftur byrjað að framleiða Púrrulaukssúpuna í neytendapakkningum ef viðbrögðin verða góð.“

Púrrulaukssúpan er enn framleidd í 15 lítra pakkningu fyrir stóreldhús. John Lindsay hefur boðið fólki að kaupa hana af heildsölunni.

Kærar þakkir fyrir frábær viðbrögð! Starfsfólk John Lindsay, umboðsaðila TORO á Íslandi, er mjög bjartsýnt á framhaldið...

Posted by Við viljum Púrrulaukssúpu TORO aftur on Thursday, May 21, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×