Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður yrði lagður niður

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Meðal þess sem lagt er til í skýrslunni er að nýtt húsnæðislánakerfi byggi á því að húsnæðislán verði veitt af húsnæðislánafélögum.
Meðal þess sem lagt er til í skýrslunni er að nýtt húsnæðislánakerfi byggi á því að húsnæðislán verði veitt af húsnæðislánafélögum. VÍSIR/GVA
Lagt er til, að íbúðalánasjóður verði lagður niður í núverandi mynd og nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi verði að danskri fyrirmynd, í nýrri skýrslu KPMG og Analytica.

Skýrslan er innlegg í vinnu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála. Stjórnin reiknar með því að skila félags- og húsnæðismálaráðherra tillögum sínum í lok apríl.

Ekki er talið ráðlegt að viðhalda starfsemi Íbúðalánasjóðs í núverandi mynd. Lagt er til að Íbúðalánasjóður hætti alfarið að veita ný útlán og starfsemi hans verði skipt í tvo hluta.

Annars vegar nýja stofnun, Húsnæðisstofnun, sem taki við félagslegu hlutverki Íbúðalánasjóðs og öðrum veigamiklum þáttum sem snúa að framkvæmd húsnæðisstefnu stjórnvalda.

Hins vegar stofnun sem annist umsjón með núverandi safni útlána og skulda þar til það er runnið út eða hugsanlega selt.

Þetta sé nauðsynlegt til þess að setja skýr skil á milli vandans sem stafar af starfsemi Íbúðalánasjóðs í fortíð og framtíð.

Viðskiptabankarnir þrír myndu stofna sitt félag hver

Meðal þess sem lagt er til í skýrslunni er að nýtt húsnæðislánakerfi byggi á því að húsnæðislán verði veitt af húsnæðislánafélögum. Þau félög verði starfsleyfisskyld fjármálafyrirtæki og um þau verði sett lög. Félögin megi eingöngu lána til húsnæðiskaupa og fjármagna útlán með útgáfu sértryggðra skuldabréfa sem skráð verða á markaði. Félögin muni ekki stunda neina aðra starfsemi.

Gert er ráð fyrir því að fjögur til fimm húsnæðisfélög verði til. Einn af grundvallarkostum þessa fyrirkomulags samkvæmt skýrslunni snýr að jafnvægi á milli útlána og fjármögnunar húsnæðislánafélaga. Gerðar yrðu kröfur um hæfilegt jafnvægi á milliútlána og útistandandi skuldabréfa viðkomandi félaga þar sem tekið er tillit til aðstæðna á íslenskum mörkuðum.

Líklegt yrði að stóru viðskiptabankarnir þrír myndu stofna sitt félag hver og ein. Einnig megi ætla að minni fjármálastofnanir komi sér saman um stofnun slíks félags og sama gæti gilt um lífeyrissjóðina.

Afsláttur af sérstökum bankaskatti

Til að innleiðing kerfisins heppnist vel yrði mikilvægt að sem mest af fjármögnun íbúðarhúsnæðis færi í gegnum húsnæðislánafélög. Því er lagt til að stjórnvöld búi til hvata, til dæmis með því að veita undanþágu eða afslátt af sérstökum bankaskatti. Jafnframt er lagt til að lífeyrissjóðum verði gert að færa ný húsnæðisveðlán sín í húsnæðislánafélög.

Lagt er til að Íbúðalánasjóður hætti alfarið að veita ný útlán og starfsemi hans verði skipt í tvo hluta. Annars vegar nýja stofnun sem taki við félagslegu hlutverki Íbúðalánasjóðs og öðrum veigamiklum þáttum sem snúa að framkvæmd húsnæðisstefnu stjórnvalda. Hins vegar stofnun sem annist umsjón með núverandi safni útlána og skulda þar til það er runnið út eða hugsanlega selt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×