Erlent

Hundur drap sjö mánaða barn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/afp
Sjö mánaða gamall drengur lést eftir að hundur réðist á hann í Ohio í Bandaríkjunum í gær. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús alvarlega slasaður þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Barnið var í umsjá ömmu sinnar þegar hundurinn, sem er af gerðinni Pit bull, réðist á það með fyrrgreindum afleiðingum.

Í byrjun síðasta mánaðar réðist hundurinn á annan hund sem særðist á fæti eftir árásina. Eigandi hundsins ákvað að kæra árásina ekki, en var hún skrásett hjá lögreglu.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×