Menning

Höfundur Hver er hræddur við Virginiu Woolf látinn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Edward Albee.
Edward Albee. Vísir/Getty
Bandaríska leikskáldið Edward Albee er látinn, 88 ára aldri. Var hann best þekktur fyrir verk sitt Hver er hræddur við Virginiu Woolf sem kom út árið 1962 og fór sigurför um heiminn.

Eftir lát Arthur Miller og August Wilson árið 2005 var Albee jafnan talinn vera merkasta núlifandi leikskáld Bandaríkhanna.

Albee vann Pulitzer-verðlaunin eftirsóttu í þrígang en þó ekki fyrir sitt þekktasta verk sem matsnefnd verðlaunanna taldi ekki nægilega upplífgandi vegna blótsyrða og kynferðilegs yrkisefnis.

Albee lést á heimili sínu á Long Island í New York-ríki Bandaríkjanna að sögn aðstoðarmanns síns. Dánarörsok er ókunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×