Körfubolti

Hlynur rauf 1.000 stiga múrinn

Hlynur Bæringsson er búinn að skora meira en 1.000 stig fyrir íslenska landsliðið.
Hlynur Bæringsson er búinn að skora meira en 1.000 stig fyrir íslenska landsliðið. vísir/ernir
Hlynur Bæringsson, fyrirliði karlalandsliðsins í körfubolta, rauf 1.000 stiga múrinn á miðvikudagskvöldið þegar strákarnir okkar lögðu Sviss, 88-72, í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2017.

Fyrirliðinn var næst stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig á eftir Herði Axel Vilhjálmssyni sem skoraði 16 stig en Hlynur tók að auki níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.

Hann hitti úr fimm af níu skotum sínum í teignum (55,6 prósent) og þremur af sex fyrir utan þriggja stiga línuna (50 prósent) en átti í miklu basli á vítalínunni þar sem hann hitti aðeins úr 25 prósent skota sinna eða tveimur af átta.

Hlynur var fyrir leikinn búinn að skora 95 stig en komst yfir 1.000 stiga múrinn í 98. landsleiknum. Hann er nú búinn að skora 1.010 stig fyrir íslenska landsliðið á sínum ferli.

Hann varð þriðji maðurinn í núverandi landsliðshóp til að skora yfir 1.000 stig en hinir eru Jón Arnór Stefánson (1.129 stig) og Logi Gunnarsson (1.381 stig).

Undankeppnin heldur áfram á morgun en strákarnir okkar spila sex leiki á 18 dögum í baráttu um sæti á Evrópumótinu á næsta ári. Ísland mætir Kýpur ytra á morgun en liðið á nú fyrir höndum þrjá útileiki áður en það snýr aftur í Höllina og klárar undankeppnina með tveimur heimaleikjum.


Tengdar fréttir

Hlynur til Stjörnunnar

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, mun leika með Stjörnunni í Domino's deild karla á komandi tímabili.

Nærri því fullkomin byrjun

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta byrjaði undankeppni EM 2017 með stæl í Laugardalshöllinni í gærkvöldi þegar það lagði Sviss með 16 stiga mun, 88-72. Þjálfarinn Craig Pedersen var ánægður með sigurinn en vill að liðið bæti sig fyrir næsta leik. Leiðin á EM byrjar vel en næsti leikur er á Kýpur.

Hlynur: Vó þungt að spila með Shouse

Í samtali við Vísi fer Hlynur Bæringsson yfir ákvörðun sína að skrifa undir hjá Stjörnunni. Hann segist hafa íhugað vel að spila fyrir KR, en er sáttur með ákvörðun sína og hlakkar til að leika með Stjörnunni í vetur og líst vel á Garðabæinn.

Hlynur: Skrítin tímasetning á þessu hjá mér

"Það er mjög góð tilfinning að byrja svona undankeppni vel og þetta var bara mjög góður leikur hjá okkur að mestu leyti,“ segir Hlynur Bæringsson eftir sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×