Lífið

Hlaut eftirsóttan Google-styrk

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Helga Guðmundsdóttir vinnur nú að meistararitgerð sinni sem fjallar um kerfið að baki Facebook.
Helga Guðmundsdóttir vinnur nú að meistararitgerð sinni sem fjallar um kerfið að baki Facebook. visir/stefán
Helga Guðmundsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur fyrst Íslendinga hlotið hinn eftirsótta Google-styrk.



Styrkurinn er til minningar um Anitu Borg sem barðist fyrir auknum hlut kvenna í tölvunar- og tæknifræðum og eiga kvenkyns nemendur í þeim greinum kost á að hljóta styrkinn.

Fjörutíu konur frá Evrópu, Afríku og Mið-Austurlöndum hlutu styrk þetta árið og er Helga ein þeirra. Styrkurinn er rúmar milljón krónur og er styrkþegum boðið í heimsókn á skrifstofur Google í Sviss. Mikill fjöldi sækir um styrkinn en leitað er eftir góðum námsárangri og leiðtogahæfileikum.

„Peningurinn er aukaatriði fyrir mér. Mesti heiðurinn er að fá að heimsækja Google núna í júlí og viðurkenningin sem styrkurinn er fyrir það sem maður hefur verið að gera. Google sýnir líka áhuga á að maður sæki um hjá þeim í kjölfarið og vilja halda sambandi við mann,“ segir Helga.

Helga var ein stofnenda /sys/tur, samtaka kvenna í tölvunarfræðinámi í HR, og hafa stjórnendur Google tjáð Helgu áhuga á að styðja við félagsskapinn með einhverjum hætti.

Google birti nýlega kynjahlutföll hjá sér og konur eru eingöngu 30 prósent starfsmanna og eingöngu 17 prósent í tæknistörfum. Styrkurinn er til þess fallinn að hvetja konur áfram, bæði til að fara í námið og sækja um störf.

„Tækifærin eru mörg í þessum geira og þá sérstaklega fyrir konur. Við erum vakandi fyrir þessu og viljum endilega fá fleiri konur í námið,“ segir Helga sem er nýkomin frá Bandaríkjunum. Þar hefur hún verið að vinna í meistararitgerðinni í samstarfi við Cornell-háskóla.

„Ég fann það úti hvað það er mikill heiður að fá þennan styrk, allir þekktu vel til hans og þetta er gífurleg viðurkenning fyrir mig faglega.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×