Erlent

Herja á Aleppo

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Fjölda sprengja hefur verið varpað á borgina Aleppo í Sýrlandi á undanförnum dögum. Aðgerðarsinnar segja minnst 30 loftárásir hafa verið gerðar í nótt. Minnst 250 þúsund manns halda til á yfirráðasvæði uppreisnarmanna í austurhluta borgarinnar.

Ný sókn stjórnarhers Sýrlands var tilkynnt í ríkissjónvarpi landsins og var borgurum í Aleppo skipað að halda sér frá hryðjuverkamönnum og stöðum þar sem þá má finna. (Ríkisstjórn Sýrlands kallar allar fylkingar sem berjast gegn sér hryðjuverkamenn.) Þá höfðu loftárásir á borgina þó staðið yfir í tvo daga áður en tilkynningin var birt.

Stjórnarherinn lýsti því yfir á mánudaginn að þeir myndu hætta að fylgja skilmálum vopnahlés Bandaríkjanna og Rússlands. Þeir sökuðu uppreisnarmenn um að hafa margrofið vopnahléið en ásakanir um slíkt höfðu gengið víxl alla vikuna sem vopnahléið var í gildi.

Loftárásir hafa verið gerðar á borgina á hverjum degi frá því á mánudaginn. Talið er að tugir hafi látið lífið.

Í samtali við Reuters sagði Ammar al-Selmo, yfirmaður björgunarsveita Aleppo, að fimm rússneskar flugvélar hefðu verið á sveimi yfir borginni.

Aleppo var stærsta borg Sýrlands áður en styrjöldin hófst í Sýrlandi. Hún hefur orðið verulega illa úti í átökunum, en stjórnarherinn hefur í raun setið um yfirráðasvæði uppreisnarmanna í tvo mánuði.


Tengdar fréttir

Sýrlenska vopnahléið í uppnámi

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir vopnahléið í Sýrlandi í fullu gildi þrátt fyrir loftárásir síðustu daga. SÞ stöðvuðu sendingu hjálpargagna til svæðis nærri Aleppo, þar sem loftárás á bílalest felldi um 20 manns.

Sýrlandsher hefur nýja sókn gegn uppreisnarhópum í Aleppo

Sýrlandsher tilkynnti nú undir kvöld að hann muni nú hefja nýja sókn gegn uppreisnarhópnum í austurhluta borgarinnar Aleppo, en herinn hefur staðið fyrir miklum sprengjuárásum á uppreisnarhópana síðustu daga, eða allt frá því að vopnahléinu lauk á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×