Viðskipti innlent

Héraðsdómur segir Haga eiga Bónusgrísinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Edith Randy Ásgeirsdóttir fór í mál gegn Högum og fór fram á að fyrirtækinu væri bannað nota bónusgrísinn svokallaða.
Edith Randy Ásgeirsdóttir fór í mál gegn Högum og fór fram á að fyrirtækinu væri bannað nota bónusgrísinn svokallaða. Vísir
Hagar eru eigendur vörumerkis bónus sem þekkt er sem Bónusgrísinn, samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur. Teiknari merkisins fór fram á að bónusgrísinn yrði úrskurðaður sem sín eign og hún hefði samið um tímabundin og skilyrt afnot af teikningunni við stofnendur Bónus. Samkvæmt því samkomulagi hefði hún rétt til að afturkalla öll afnot af bónusgrísnum.

Edith Randy Ásgeirsdóttir fór í mál gegn Högum og fór fram á að fyrirtækinu væri bannað nota Bónusgrísinn svokallaða. Hún fór einnig fram á 500 þúsund króna dagsektir frá dómsuppsögu, þar til vörumerkið væri afskráð og allar myndir af grísnum teknar úr notkun.

Edith teiknaði merkið fyrir Bónus árið 1989, þegar hún rak Landlist, auglýsinga- og skiltagerð. Þá vann hún margvíslega hönnunarvinnu og auglýsingagerð fyrir Bónus fram að árinu 2007.

Hún lagði fram samkomulag sem hún sagðist hafa gert við stofnendur Bónus í lok árs 1991 um eignar-, notkunar-, og umráðarétt Bónusgríssins. Þar segir að verði breyting gerð á eignarhaldi Bónus eigi Edith tilkall til þess að afturkalla rétt fyrirtækisins á allri notkun gríssins, innan tuttugu ára frá breytingum eignarhaldsins.

Hún nýtti sér þó ekki þann rétt fyrr en árið 2010, þegar Arion Banki hafði eignast fyrirtækið. Þrátt fyrir það hafi hún starfað með stjórnendum Bónus í um 18 ár og á þeim tíma hafi fyrirtækið farið í gegnum mörg eigendaskipti. Þá segir í dómsorðunum að hún hafi heldur ekki sýnt fram á rétt sinn þegar hún mótmælti skráningu vörumerkisins til Einkaleyfisstofu.

Þegar Edith hófst ætlaði að sækja rétt sinn til gríssins voru níu ár liðin frá niðurstöðu Einkaleyfisstofu lá fyrir um að Haga ættu bónusgrísinn. Í dómsorðum segir að hún hafi því tapað rétti sínum vegna tómlætis.

Málskostnaður var felldur niður. Dóminn má sjá á heimasíðu Héraðsdóms Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×