Viðskipti erlent

Helmingur viðskiptaskóla Bandaríkjanna gætu lokað næstu 5 árin

Finnur Thorlacius skrifar
Verða skóalstofur viðskiptaskólanna í Bandaríkjunum auðir á næstu árum?
Verða skóalstofur viðskiptaskólanna í Bandaríkjunum auðir á næstu árum?
Margir af viðskiptaskólum sem bjóða uppá MBA nám í Bandaríkjunum bjóða nú nemendum sínum að taka námið án skólasetu heldur á netinu. Þessi þróun mun líklega verða til þess að mörgum skólabyggingum verður lokað á næstu árum og spáð er að helmingur þeirra verður horfinn eftir 5 eða 10 ár.

Margir nemendur kjósa nú að taka MBA nám samhliða starfi og spara með því námskostnað sinn. Einnig hefur vigt meistaranáms sem gefur MBA gráðu þarlendis farið verulega minnkandi og margur fyrirtækjastjórnandinn hefur látið hafa eftir sér að þeir meti ekki mikils það nám er þeir ráða til sín fólk.

Hvort það er til marks um lítil gæði námsins er erfitt að segja. Því hafa margir af þeim háskólum sem kenna MBA nám lækkað umtalsvert það gjald sem nemendur greiða til námsins og fullyrt er að sú lækkun nemi að meðaltali um 25%. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×