Enski boltinn

Helgi Kolviðs: Klopp var líka froðufellandi sem leikmaður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
„Ég held að hann hafi bara lýst þessu nokkuð vel á fundinum áðan, hann er bara þessi venjulegi,“ sagði Helgi Kolviðsson um Jürgen Klopp, fyrrverandi samherja sinn hjá FSV Mainz 05 og núverandi knattspyrnustjóra Liverpool, í samtali við Ísland í dag.

Helgi og Klopp léku saman hjá Mainz á árunum 1998-2000 og eru góðir félagar.

„Hann er bara eins og hann er og hann er ekkert að fela það,“ sagði Helgi og bætti því við að Klopp hafi verið jafn líflegur og æstur sem leikmaður og hann er á hliðarlínunni í dag.

„Sem leikmaður var hann alveg froðufellandi. Þetta er honum eðlislægt. Hann er ekkert að fela þetta og hlær stundum af sjálfum sér þegar hann sér sig í sjónvarpinu.“

Helgi segir að þeir Klopp hafi náð vel saman þegar þeir léku með Mainz og haldi enn sambandi.

„Það hefur verið mikið að gera hjá okkur undanfarin ár en þegar við hittumst er það bara eins og við höfum hist í gær,“ sagði Helgi sem er sjálfur Liverpool-maður. Hann er að vonum afar ánægður með nýja stjórann.

„Þetta er frábært, líka fyrir hann. Hann er þannig týpa að hann passar alveg rosalega vel inn í þetta hjá Liverpool,“ sagði Helgi sem hefur þjálfað í Þýskalandi og Austurríki eftir að leikmannaferlinum lauk. Hann var síðast við stjórnvölinn hjá SV Reid í austurrísku úrvalsdeildinni.

Hlusta má á viðtalið í heild hér að ofan.


Tengdar fréttir

Klopp drakk í sig söguna á Anfield | Myndir

Jürgen Klopp var kynntur í dag sem nýr knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool en hann tók á móti blaðamönnum og ljósmyndurum á Anfield í dag.

Ferguson hefur trú á Klopp

Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Jürgen Klopp sé rétti maðurinn fyrir Liverpool en Þjóðverjinn var kynntur til leiks sem næsti stjóri Bítlaborgarliðsins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×