Viðskipti innlent

Hagnaður Símans 1,3 milljarðar á fyrri hluta árs

Atli Ísleifsson skrifar
Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, forstjóri Símans. Vísir/Pjetur
Hagnaður Símans á fyrstu sex mánuðum ársins fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 4,0 milljörðum króna og hagnaður eftir skatta 1,3 milljörðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum en félagið birti uppgjör félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins í kauphöll fyrr í dag.

Orri Hauksson, forstjóri Símans, segist sáttur við afkomuna á fyrri hluta ársins. „Kostnaðurinn lækkar milli ára en tekjurnar dragast lítillega saman. Það er mikil samkeppni á fjarskiptamarkaðnum og viðskiptavinir fylgjast vel með þeim nýjungum sem í boði eru. Síminn hefur á undanförnum misserum verið í fararbroddi í því að bjóða nýjar og breyttar þjónustuleiðir og þróa vöruframboðið í takt við þarfir viðskiptavina. Þetta hefur skilað sér í því að viðskiptavinum Símans í farsíma og sjónvarpi hefur fjölgað talsvert það sem af er ári. Sameining Símans og Skjásins gefur okkur góð tækifæri til að halda áfram að bjóða neytendum framúrskarandi þjónustu á samkeppnishæfu verði.

Vinna við skráningu félagsins í kauphöll gengur vel og við gerum ráð fyrir því að Síminn verði skráður á fjórða ársfjórðungi. Það eru því viðburðaríkir tímar framundan,“ segir Orri.

Úr afkomutilkynningu:

• Sala dróst saman um 4,4%, nam 14,6 milljörðum króna samanborið við 15,3 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þar munar mest um tekjur Símans í Danmörku sem voru að hluta inni í tölum fyrra árs en fyrirtækið var selt í fyrra.

• Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam rétt rúmum 4,0 milljörðum króna. Hann nam rétt tæpum 4,0 milljörðum árið 2014. EBITDA hlutfallið hækkaði í 27,5%. Það var 26,2% á fyrri hluta 2014.

• Hagnaður samstæðu eftir skatta nam 1,3 milljörðum króna sem er sami hagnaður og  á sama tímabili í fyrra.

• Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 4,1 milljörðum króna á tímabilinu, samanborið við 4,0 milljarða á fyrstu 6 mánuðum fyrra árs. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3,3 milljörðum króna samanborið við 3,2 milljarða á fyrstu 6 mánuðum 2014.

• Vaxtaberandi skuldir námu 24,8 milljörðum við lok tímabils en voru 26,1 milljarður 30. júní 2014. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 20,8 milljarðar króna og lækkuðu um tæpar 600 milljónir króna á tímabilinu.

• Fjármagnsgjöld voru 597 milljónir króna. Vaxtagjöld voru 788 milljónir króna, fjármunatekjur voru 205 milljónir kr. og  gengishagnaður 110 milljónir króna.

• Eiginfjárhlutfall Símans hf. er 50,7% og eigið fé er 31,2 milljarðar króna,“ segir í tilkynningunni frá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×