Viðskipti innlent

Hagnaður N1 nam 135 milljónum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eigið fé N1 er 10,5 milljarðar króna.
Eigið fé N1 er 10,5 milljarðar króna.
Hagnaður N1 eftir skatta nam 134,6 milljónum króna samanborið við 77 milljónir árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 269 milljónum króna samanborið við 120 milljónir áður. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem félagið birti eftir lokun markaða í dag.

Framlegð af vörusölu jókst um 12,8% á 1. ársfjórðungi 2015 miðað við sama tímabil 2014.  Eigið fé var 10,5 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 45,0% í lok mars 2015. Arðsemi eiginfjár var 4,9% á ársfjórðungnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×