Viðskipti innlent

H&M spenntari fyrir öðrum mörkuðum en þeim íslenska

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þúsundir streymdu í Smáralind þegar Lindex opnaði á sínum tíma. Reikna mætti með svipuðum viðbrögðum ef H&M kæmi til landsins.
Þúsundir streymdu í Smáralind þegar Lindex opnaði á sínum tíma. Reikna mætti með svipuðum viðbrögðum ef H&M kæmi til landsins.
Þrálátur orðrómur hefur verið undanfarin ár að fataverslunin Hennes & Mauritz, betur þekkt sem H&M, muni opna útibú í Smáralind í Kópavogi. Framkvæmdastjóri Smáralindar segir fyrirtækið vera með skýra stefnu varðandi opnanir og greinilegt að aðrir markaðir, þar sem eigi eftir að opna verslanir, séu meira spennandi en sá íslenski.

„Það eru engar breytingar á því. Það hafa ekki verið neinar viðræður í gangi af okkar hálfu,“ segir Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar.

Líklega hallar á engan með þeirri fullyrðingu að H&M sé vinsælasta vörumerki Íslendinga í kaupferðum erlendis. En hvers vegna er fyrirtækið ekki búið að opna verslun í landi þar sem vörumerkið er svo vinsælt? Sturla segist auðvitað vona það besta fyrir íslenskan markað en að H&M taki sér langan tíma þegar komi að ákvörðunum um opnun verslana.

Einhver bið verður á því að sænska verslunin komi til Íslands.Mynd af Wikipedia
Greinilega aðrir markaðir meira spennandi en sá íslenski

„Þetta er gríðarlega stórt alþjóðlegt fyrirtæki og þeir hafa sína stefnu varðandi opnanar. Þeir eiga eftir að opna á mörkuðum sem eru greinilega meira spennandi en íslenski markaðurinn,“ segir Sturla.

Hann bendir á að stefna H&M sé mjög ábyrg og sterk rök þurfi til að detta inn í fyrirfram skilgreinda atburðarás varðandi opnanir. 

Sjá einnig: Í viðræðum um að opna H&M á Íslandi

Sturla segir að Smáralind minni reglulega á sig hjá H&M og öðrum stórum vörumerkjum. Hins vegar hafi engar formlegar viðræður átt sér stað í um fjögur ár.

„Við vorum í samningaviðræðum við þá á sínum tíma, árið 2011. Það er síðasta skipti sem við ræddum við þá af einhverri alvöru. Niðurstaðan varð að þeir myndu ekki koma,“ segir Sturla. Stöðugur orðrómur fari ekki framhjá honum en þetta sé staðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×