Enski boltinn

Gutierrez mun aldrei fyrirgefa Newcastle

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gutierrez kemur inn á í leiknum gegn United.
Gutierrez kemur inn á í leiknum gegn United. Vísir/Getty
Argentínumaðurinn Jonas Gutierrez segir að hann muni aldrei fyrirgefa Newcastle fyrir framkomu þess eftir að hann sneri aftur að lokinni krabbameinsmeðferð í heimalandinu.

Gutierrez greindist fyrst með krabbamein í eistum í september 2013 og var annað eistað fjarlægt í október það ár. Hann sneri aftur til félagsins síns, Newcastle, mánuði síðar en var lánaður til Norwich í janúar og lék með liðinu til loka tímabilsins.

Fáir vissu af baráttu Gutierrez við krabbameinið fyrr en að hann greindi frá því í viðtali í september að það hefði tekið sig upp. Hann hóf geislameðferð stuttu síðar og var svo útskrifaður af sjúkrahúsi í Argentínu þann 3. nóvember.

Eftir hvíld og endurhæfingu sneri miðjumaðurinn loks aftur til Newcastle og spilaði sinn fyrsta leik með félaginu eftir veikindin er hann kom inn á sem varamaður í 1-0 tapi liðsins gegn Manchester United í byrjun mánaðarins.

Gutierrez með liðsfélaganum Yoan Gouffran á æfingu Newcastle.Vísir/Getty
Gutierrez greindi frá því í viðtali við fjölmiðla í vikunni að hann sé afar ósáttur við þau skilaboð sem hann fékk frá Alan Pardew, þáverandi stjóra liðsins, eftir að hann hafði lokið við fyrstu krabbameinsmeðferð sína.

„Ég get ekki fyrirgefið þeim fyrir hvernig það var komið fram við mig,“ sagði Gutierrez í sjónvarpsviðtali við Canal+.

„Ég fór í aðgerðina í Argentínu þar sem eistað var fjarlægt. Allar rannsóknir litu vel út eftir aðgerðina og um miðjan nóvember (2013) fór ég aftur til Englands.“

„Það var svo í byrjun desember að stjórinn [Alan Pardew] sagði að það væri best fyrir mig ef ég myndi finna mér annað félag. Ég skil hvernig fótboltinn virkar og menn þurfa stundum að taka svona ákvarðanir.“

Vísir/Getty
„Það er deginum ljósara að félagið hugsar um eigin hagsmuni en í aðstæðum eins og þessum þá er meira sem þarf að hafa í huga. Ég var búinn að þjóna félaginu í fimm ár og ég spilaði mikið.“

Þrátt fyrir það ákvað Gutierrez að snúa aftur eftir lánssamninginn og mun hann vera í herbúðum félagsins þar til í sumar en þá rennur samningur hans við Newcastle úti.

„Ég ætla að gefa allt sem ég á og vona það besta. Ég sé hlutina nú frá öðru sjónarhorni og forgangsröðunin hjá manni breytist. Það mikilvægasta í lífinu er heilsan og hamingjan.“


Tengdar fréttir

Jonás: Mun aldrei gleyma móttökunum | Myndir

Argentínumaðurinn Jonás Gutiérrez sneri aftur á fótboltavöllinn í gær þegar Newcastle United tapaði fyrir Manchester United með einu marki gegn engu á St James' Park.

Jonás Gutiérrez sigraðist á krabbanum

Jonás Gutiérrez, vængmaður Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, fékk góðar fréttir á dögunum en læknar sögðu hann hafa sigrast á krabbameininu sem hann hefur glímt við síðustu mánuði.

Gutierrez með krabbamein í eista

Jonas Gutierrez, miðjumaður Newcastle, spilar ekki fótbolta á næstunni eftir að hafa verið greindur með krabbamein í eista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×