Viðskipti innlent

Guðmundur nýr markaðsstjóri Icewear

Sæunn Gísladóttir skrifar
Guðmundur H. Björnsson.
Guðmundur H. Björnsson. Mynd/Aðsend
Guðmundur H. Björnsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Icewear. Guðmundur, sem hefur víðtæka reynslu af markaðs- og sölumálum, kemur til Icewear frá 365 miðlum þar sem hann var forstöðumaður markaðs- og vörustjórnunarsviðs, segir í tilkynningu.

Hjá Icewear mun Guðmundur sinna stefnumótun og áætlanagerð í markaðsmálum, daglegum rekstri markaðsdeildar ásamt samskiptum við fjölmiðla og samstarfsaðila. 

Áður hefur Guðmundur meðal annars starfað sem forstöðumaður sölu- og markaðssviðs hjá Tal,  vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já og faglegur stjórnandi markaðsmála hjá Símanum. Hann er með B.Sc gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands, ásamt því að hafa lokið námi í rekstrarfræði frá sama skóla. Guðmundur hefur einnig setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka.  

Guðmundur H. Björnsson, markaðsstjóri Icewear: „Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Icewear á þessum tímapunkti, enda margir áhugaverðir hlutir að gerast hjá fyrirtækinu. Icewear hefur vaxið hratt undanfarin misseri og tel ég mikil tækifæri til staðar, bæði hér heima og erlendis, í þeim verkefnum sem framundan eru og hlakka mikið til að vinna með þeim öfluga hópi fólks sem starfar hjá fyrirtækinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×