Viðskipti erlent

Grínast með að kaupa Twitter og loka því til að þagga í Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Ákveðinn brandari sem gengur nú á milli aðila sem versla með pesóinn felur í sér að Mexíkó sleppi því að verja pesóinn gegn 140 stafa reiðislestrum Trump á næstu fjórum til átta árum.
Ákveðinn brandari sem gengur nú á milli aðila sem versla með pesóinn felur í sér að Mexíkó sleppi því að verja pesóinn gegn 140 stafa reiðislestrum Trump á næstu fjórum til átta árum. Vísir/GEtty
Seðlabanki Mexíkó tilkynnti í vikunni að hann hefði þegar varið tveimur milljörðum dala, um 228 milljarðar króna, í að verja gjaldmiðil sinn gegn Donald Trump. Í hvert sinn sem Trump sem er verðandi forseti Bandaríkjanna tjáir sig á neikvæðan hátt um Mexíkó á Twitter, verður pesóinn fyrir þrýstingi.

Ákveðinn brandari sem gengur nú á milli aðila sem versla með pesóinn felur í sér að Mexíkó sleppi því að verja pesóinn gegn 140 stafa reiðislestrum Trump á næstu fjórum til átta árum. Þess í stað eyði ríkið tólf milljörðum dala í að kaupa Twitter og loka því.

Samkvæmt Bloomberg eru stjórnvöld í Mexíkó orðin verulega þreytt á því að efnahagur þeirra og sparifé íbúa dragist saman vegna orða Trump á Twitter. Óhætt er að segja að fleiri aðilar séu sammála Mexíkóum. Sérstaklega með tilliti til þess að Trump hefur ítrakað farið neikvæðum orðum um fjölmörg bandarísk fyrirtæki á undanförnum mánuðum.

Á blaðamannafundi Trump á miðvikudaginn sagði hann neikvæða hluti um lyfjafyrirtæki og þau lækkuðu að meðaltali um þrjú prósent í verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×