Viðskipti erlent

Grikkir biðja um nýja neyðarhjálp

Samúel Karl Ólason skrifar
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands. Vísir/EPA
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðið um nýja neyðarhjálp fyrir Grikkland til tveggja ára. Samkvæmt beiðninni kæmi hjálpin frá Stöðugleikaráði ESB. Einungis nokkrar klukkustundir eru í að Grikkland fari í vanskil á láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Grikkland sitji enn við samningaborðið. Frekari upplýsingar um hvað nýja tilboðið felur í sér liggja ekki fyrir.

Angela Merkal sagði hinsvegar í dag að hún væri ekki vongóð um að deiluaðilar myndu komast að samkomulagi í dag. Það fer þvert á það sem hún sagði fyrr í dag um að enn væri tími til viðræðna. Þar að auki sagði hún við þingmenn í Þýskalandi að afleiðingar efnahagskrísu Grikklands ætti ekki að hafa mikil áhrif á evrusvæðið í heild sinni.

Embættismenn ESB segja að renni núverandi neyðaráætlun út klukkan tíu í kvöld, muni Grikki tapa aðgangi að rúmum 16 milljörðum evra í fjárhagsaðstoð. Grikkir gætu farið fram á annars konar aðstoð en það ferli myndi taka tíma sem Grikkir hafa ekki.


Tengdar fréttir

Segir enn svigrúm til viðræðna

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir að engin skref hafi verið stigin í deilu Grikklands og kröfuhafa þeirra.

Juncker bauð Grikkjum upp á neyðarfund í dag

Ef Grikkir greiða ekki afborgun á láni sínu hjá AGS fyrir miðnætti yrði það í fyrsta skipti sem þróað lýðræðisríki stendur ekki í skilum við sjóðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×