Viðskipti erlent

Gervigreind vinnur þá bestu í póker

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Gervigreindin Libratus vann sigur á fjórum atvinnumönnum í Texas Hold'em póker á móti í Pitts­burgh sem lauk í vikunni. Samtals nemur upphæðin sem Libratus vann sér inn rúmlega tvö hundruð milljónum króna.

Libratus er verk prófessorsins Tuomas Sandholm og doktorsnemans Noams Brown frá Carnegie Mellon-háskóla í Bandaríkjunum.

Gervigreindin er hins vegar ekki bara hönnuð fyrir póker heldur til þess að vinna úr ófullkomnum upplýsingum. Þannig greinir Digital Trends frá því að hún gæti nýst við viðskipti, uppboð og margt fleira.

Þar sem Libratus þarf ekki að sofa hafði hún ákveðið forskot á atvinnumennina sem hún atti kappi við. Á meðan þeir sváfu reiknaði Libratus út framhaldið og byggði á atburðum dagsins. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×