Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Erum enn á lægðarbrautinni: „Við getum ekki hrósað happi alveg strax“ Gera má ráð fyrir áframhaldandi lægðargang næstu daga. Rauðar viðvaranir tóku gildi í gær á suðvesturhorni landsins, í annað sinn í þessum mánuði og í þriðja sinn frá því að litakóðunarkerfi Veðurstofunnar var tekið í notkun árið 2017. 22.2.2022 17:57
Samræmdu prófin blásin af og óvissa um framtíð þeirra Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir á skólaárinu. Gert hafði verið ráð fyrir að þau yrðu lögð fyrir nemendur í fjórða, sjöunda og níunda bekk í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins. Óvissa hafði verið um framkvæmd prófanna í grunnskólum landsins og hvort af þeim yrði. 22.2.2022 15:32
Jáeindaskanninn bilaði á einkar óheppilegum tíma Bilun kom upp í jáeindaskanna Landspítalans 15. febrúar og er von á því að hann komist aftur í notkun á föstudag. Þurft hefur að fresta rannsóknum á rúmlega tuttugu sjúklingum vegna þessa. 22.2.2022 15:29
Mikill missir ef Höllin rís ekki á ný Þórhallur Einisson, formaður íþróttafélagsins Hamars, segir skilaboðin sem hann fékk í morgun þegar hann kveikti á símanum hafa verið einföld. Hamarshöllin væri farin. Bæjarstjóri segir áfallið mikið fyrir bæjarfélagið. 22.2.2022 14:57
Öllu aflétt í síðasta lagi á föstudag Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á von á því að tilkynnt verði um afléttingar innanlands og á landamærum í allra síðasta lagi á föstudaginn. Þetta kom fram í máli hans að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 22.2.2022 14:13
Arnór hættir sem forstjóri Menntamálastofnunar og fær starf í ráðuneytinu Arnór Guðmundsson mun láta af störfum sem forstjóri Menntamálastofnunar (MMS) og byrja hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu þann 1. mars næstkomandi. 22.2.2022 13:44
Landspítalinn býst ekki við að kalla fólk úr einangrun Landspítalinn hyggst ekki sækja um undanþágur frá einangrun fyrir starfsfólk sitt nema brýna nauðsyn beri til, að sögn forstjórans. Sóttvarnalæknir segir að forsendur séu fyrir því að veita slíkar undanþágur í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirusmita og mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum. 22.2.2022 13:31
Gróðurhús með átján þúsund jarðarberjaplöntum stórskemmt „Það verða engin ber héðan út þetta ár og fram á mitt næsta að minnsta kosti,“ segir Hólmfríður Geirsdóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Jarðarberjalands í Reykholti í Bláskógabyggð. 22.2.2022 13:06
Horfa til Eyja þar sem staðan er mjög erfið Allt er er nú gert til þess að reyna að koma á rafmagni í Vestmannaeyjum þar sem varaafl dugir ekki til þess að knýja bæjarlífið áfram. Hús eru farin að kólna. 22.2.2022 13:01
Gunnar Smári gefur kost á sér til formennsku í Heimdalli Gunnar Smári Þorsteinsson hefur gefið kost á sér til formennsku í Heimdalli, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Aðalfundur félagsins fer fram í vikunni eða dagana 23. til 25. febrúar. 22.2.2022 12:30
Hagstofustjóri botnar ekkert í Sigurði Inga Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skoraði óvænt á Hagstofu Íslands að taka markaðsverð húsnæðis úr vísitölu neysluverðs. Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri skilur ekki hvað ráðherra er að fara. 22.2.2022 12:15
Skemmdir á rafmagnslínum Landsnets hlaupa á tugum milljóna Víðtækt rafmagnsleysi er á landinu eftir nóttina og skemmdust bæði línur frá Veitum og Landsneti. Veðrið olli miklu álagi á flutningskerfi Landsnets og víðtækum truflunum á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. 22.2.2022 11:43
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður óveðrið sem gengur yfir landið fyrirferðamikið en mikill vatnselgur kom fólki víða í vanda auk þess sem rafmagni sló út á Suðurlandi. 22.2.2022 11:36
Víðtækt rafmagnsleysi vegna óveðursins Töluvert er um að skemmdir hafi orðið á rafdreifikerfi Veitna vegna óveðursins sem nú gengur yfir landið. Rafmagnsstaurar hafa víða brotnað, línur slitnað auk þess sem ísing hefur safnast upp á þeim. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. 22.2.2022 11:22
Skjálfti að stærð 4,8 í Bárðarbungu Jarðskjálfti að stærð 4,8 mældist í norðvesturenda Bárðarbunguöskjunnar skömmu eftir klukkan tíu í morgun. 22.2.2022 10:53
2.415 greindust smitaðir innanlands í gær 2.415 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. 22.2.2022 10:28
Einn á gjörgæslu 42 liggja á Landspítalanum með Covid-19. Einn er á gjörgæslu, ekki í öndunarvél. 22.2.2022 10:19
Ólína telur smáa letrið lýsa hrappshætti Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rithöfundur sem búsett er í Reykjavík lenti í leka vegna asahláku og skýfalls. Af því að vatnið kemur að utan segir hún tryggingafélagið Vörð stikkfrí. Hún telur sig og aðra fórnarlambs hins svokallaða smáaleturs. 22.2.2022 10:03
Hamarshöllin í Hveragerði fokin Hamarshöllin, risa blöðru íþróttahús er fokin og stendur grunnur hússins aðeins eftir. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði staðfesti að höllin hafi fokið snemma í morgun í ofsaveðri í Hveragerði. 22.2.2022 09:54
Kári segir ákvörðun rektors í siðanefndarmáli herfileg mistök Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur það mikil mistök af hálfu Jóns Atla Benediktssonar háskólarektors að telja úr vegi að siðanefnd HÍ fjalli um kæru Bergsveins Birgissonar á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. 22.2.2022 09:44
Björgunarsveitin í Keflavík bjargaði tveimur mönnum naumlega úr höfninni Björgunarsveitin í Keflavík var á fullu í alla nótt, eins og björgunarsveitir um allt land, til að koma í veg fyrir alls konar tjón, fok á ruslatunnum, þakplötum og öllu þessu „klassíska“. Eitt útkall stóð þó framar öðrum, þegar tveir ungir menn urðu innlyksa í höfninni. 22.2.2022 08:51
Kölluð út vegna alelda bíla í Kópavogi Slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út eftir að tilkynnt var um eld í bíl í hverfi 203 í Kópavogi um miðnætti. 22.2.2022 07:34
Sveitarfélög rekin með 6,4 milljarða halla á árinu Samantekt sem nær til 67 sveitarfélaga, þar sem í búa 99,9 prósent landsmanna, sýnir að þau verði rekin með 6,4 milljarða halla á yfirstandandi ári, eða sem nemur 1,5 prósent af tekjum. 22.2.2022 07:23
Björguðu bílum í svakalegum vatnselg á Miklubraut: „Þeir voru bara ekki með nógu stór stígvél strákarnir“ Mikill vatnselgur er nú víða á götum á höfuðborgarsvæðinu. Björgunarsveitargarparnir Magnús Stefán Sigurðsson og Gunnar Ingi Sverrisson voru til að mynda að reyna að losa stíflur á Miklubrautinni og hjálpa ökumönnum í vandræðum þegar fréttastofa náði tali af þeim. Þeir létu vatnselginn lítið á sig fá en biðla til fólks að fara varlega. 22.2.2022 00:53
Ferðalangar sátu fastir í fimm klukkustundir: „Við vorum hrædd“ Björgunarsveitir vinna enn að því að ferja fólk af heiðinni þar sem fjölmargir bílar sitja fastir vegna veðurs en þó nokkrir útlendingar voru á meðal þeirra sem festust. 22.2.2022 00:13
Hafa setið föst á Hellisheiði í rúma sex tíma: „Við sitjum bara hérna og bíðum“ Hjón frá Selfossi eru meðal þeirra sem hafa setið föst í bílaröð á Hellisheiði frá því síðdegis. Björgunarsveitir vinna nú að því að ferja fólk úr bílunum en röðin hefur ekki haggast frá því að veginum var lokað. Hjónin segja fólk þó lítið kippa sér upp við stöðuna og eru þau sjálf í góðu atlæti í bílnum sínum. 21.2.2022 23:01
Mjófirðingar kalla eftir laxeldi og jarðgöngum til að treysta byggð Tvísýnt er um framtíð byggðar í Mjóafirði eftir að skólahald lagðist þar af fyrir fjórum árum. Þegar Mjófirðingar eru spurðir hvað sé til bjargar er svarið skýrt: Jarðgöng og laxeldi. 21.2.2022 22:20
Tveimur mönnum bjargað úr bíl umluktum sjó í Keflavík Tveimur mönnum var bjargað úr bíl við Keflavíkurhöfn í kvöld en bíll þeirra lenti í lóni sem hafði myndast vegna mikils sjógangs við höfnina. Lögregla segir mennina heila og höldnu. 21.2.2022 22:02
Víða truflanir á rafmagni vegna veðurs Veðrið sem nú gengur yfir landið hefur haft áhrif á rafmagn víða en að því er kemur fram á heimasíðu Landsnets var rafmagnslaust á Vestfjörðum, Hrútafirði, Ólafsvík, Snæfellsnesi og í Borgarfjarðarsveit á tímabili. Rafmagn er nú komið aftur á alls staðar nema í Ólafsvík. 21.2.2022 21:35
Þingkona í Borgarbyggð í baráttu við storminn Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins er ein þeirra sem hefur fengið að kynnast storminum sem nú gengur yfir landið frá fyrstu hendi. Hún rétt brá sér út til að gæta að ruslatunnum við heimili sitt í Borgarbyggð og fékk salíbunu í boði hvassviðrisins. 21.2.2022 21:24
Blöskrar að fólk leyfi sér að réttlæta ofbeldi á samfélagsmiðlum Baráttukonu fyrir réttindum barna í skólakerfinu blöskrar umræða um mál fjórtán ára stúlku í Dalvíkurskóla sem lenti í átökum við kennara. Fólk leyfi sér að réttlæta ofbeldi gegn börnum á samfélagsmiðlum en líti fram hjá hinu raunverulega vandamáli: kerfi sem bregðist börnum í vanda. 21.2.2022 21:23
Lægðin í beinni Aftakaveður gengur nú yfir landið en rauð viðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Faxaflóa. Hér má sjá lægðina í beinni útsendingu. 21.2.2022 20:59
Gera ráð fyrir að allt að hundrað manns sitji fastir í Þrengslunum Margir sitja enn fastir í bílum sínum á Þrengslaveginum en fjöldahjálparstöð hefur nú verið opnuð í Grunnskólanum í Þorlákshöfn og verður fólk flutt þangað. Fyrr í dag voru farþegar í 70 manna rútu fluttir í fjöldahjálparstöð í Hellisheiðavirkjun. 21.2.2022 20:48
Björgunarsveitir að störfum víða: „Verkefnin eru að tínast inn“ Það sem af er kvöldi hafa björgunarsveitir sinnt rúmlega 70 verkefnum víðs vegar um landið. Verkefnastjóri hjá Landsbjörgu segir að mest megnis sé um að ræða fok- og vatnsverkefni en einnig er mikið um fasta bíla. Hún segir verkefnin halda áfram að týnast inn og eru þau nú að aukast í fleiri landshlutum. 21.2.2022 20:17
Landspítalinn býst ekki við að kalla fólk úr einangrun Landspítalinn hyggst ekki sækja um undanþágur frá einangrun fyrir starfsfólk sitt nema brýna nauðsyn beri til, að sögn forstjórans. Sóttvarnalæknir segir að forsendur séu fyrir því að veita slíkar undanþágur í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirusmita og mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum. 21.2.2022 20:00
Rýma hús á Patreksfirði og lýsa yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu á Patreksfirði og hafa því átta íbúðarhús verið rýmd á svæðinu. Óvissustig er nú í gildi vegna hættu á snjóflóðum á norðanverðum Vestfjörðum. 21.2.2022 19:40
Áttaði sig á því að þau geta ekki flutt Móðir drengs með alvarlega heyrnarskerðingu vill að táknmál verði skyldufag á öllum skólastigum. Fjölskyldan er utan af landi en getur nú hvergi annars staðar búið en í Reykjavík, þar sem eini skólinn með viðeigandi sérþekkingu er starfræktur. 21.2.2022 19:01
Leit að Sigurði ekki enn borið árangur Leit stendur enn yfir að Sigurði Kort Hafsteinssyni, 65 ára gömlum karlmanni sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag. Leit fór fram við Kársnesið í dag en sú leit bar ekki árangur. 21.2.2022 18:34
Braut gegn dóttur sinni og tveimur systurdætrum Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri dóttur sinni og tveimur systurdætrum sínum. Honum er gert að greiða stúlkunum samanlagt fimm og hálfa milljóna króna í bætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. 21.2.2022 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna ofsaveðurs sem gengur yfir allt landið í kvöld. Rauðar stormviðvaranir taka gildi innan skamms en almannavarnir hafa mestar áhyggjur af vatnstjóni í gríðarlegum leysingum. Víðir Reynisson ræðir við okkur í beinni útsendingu í kvöld. 21.2.2022 18:01
Óbólusettir gætu áfram sætt takmörkunum við landamærin Langtímafyrirkomulag sóttvarna á landamærum verður til umræðu á ríkisstjórnarfundi á morgun. Þar má vænta mikilla tilslakana og jafnvel algerra afléttinga fyrir bólusetta. Nokkrar útfærslur eru til skoðunar en samkvæmt heimildum fréttastofu er stærsta spurning hvort halda eigi strangari reglum fyrir óbólusetta sem koma inn í landið. 21.2.2022 17:52
Búa sig undir aftakaveður: „Það má segja að við séum í ákveðnu formi“ Björgunarsveitir víða um land búa sig nú undir aftakaveður á öllu landinu en gular og appelsínugular viðvaranir hafa nú tekið gildi á suðvesturhorni landsins. Rauðar viðvaranir taka síðan gildi klukkan 19 á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Faxaflóa. 21.2.2022 17:47
Forsætisráðherra brugðið yfir að blaðamennirnir hafi verið kallaðir til yfirheyrslu Forsætisráðherra segist hafa verið brugðið yfir fréttum af því að fjórir blaðamenn hefðu verið kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu með réttarstöðu sakborninga í tengslum við umfjallanir þeirra um Samherja. Hún treysti því að lögregla fari ekki af stað með slíka rannsókn nema ríkt tilefni sé til. 21.2.2022 17:34
Öllu flugi í fyrramálið frestað eða aflýst Öllu flugi íslensku flugfélaganna til og frá Keflavíkurflugvelli í nótt og í fyrramálið hefur verið frestað eða aflýst vegna óveðursins. Allar flugferðir Icelandair frá Bandaríkjunum til landsins í kvöld hefur einnig verið frestað um sólarhring. 21.2.2022 16:23
Bílarnir ráði við saltkassana og undanþága veitt fyrir nagladekk Skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins segir alla þá atvinnubíla sem voru boðnir út árið 2020 hafa burðargetu upp á 1180 kíló og valdi því saltkössum upp á eitt onn. Saltgeymslur séu vissulega í gömlum bröggum en hafi fengið nauðsynlegt viðhald er á þurfi að halda. Þá hafi undanfararbílar fengið undanþágu og megi vera á nagladekkjum. 21.2.2022 16:14