Veður

Bjart­viðri á verkalýðsdaginn

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Blíðskaparveður hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga.
Blíðskaparveður hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. vísir/vilhelm

Verkalýðsdagurinn heilsar með hægum vindi og yfirleitt björtu veðri.

Norðaustanlands verður skýjað fram yfir hádegi. Síðdegis í dag verður suðlæg átt, 3-8 m/s vestanlands. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Á höfuborgarsvæði segir að búast megi við hægri breytilegri átt, og bjart með köflum, en sunnan 3-8 m/s og dálítil rigning á morgun. Hiti 5 til 9 stig að deginum.

Á morgun verður sunnan og suðvestan 5-13 m/s, hvassast við fjöll á Vesturlandi. Dálítil rigning á sunnan- og vestanverðu landinu en bjart að mestu norðaustantil. Hiti 6 til 11 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað með köflum og dálítil rigning vestanlands. Bjart að mestu um austanvert landið en líkur á þokulofti við sjávarsíðuna. Hiti 1 til 9 stig.

Á föstudag:

Suðaustlæg átt 5-13 m/s, hvassast við suðurströndini. Víða rigning eða súld en einnig slydda norðaustantil. Hiti 2 til 9 stig.

Á laugardag:

Austlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og rigning eða súld með köflum, einkum vestanlands. Hiti 6 til 11 stig.

Á sunnudag og mánudag:

Suðaustlæg átt og dálítil rigning, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 4 til 14 stig, svalast austanlands.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir breytilega átt og rigningu, einkum sunnantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×