Enski boltinn

Stjörnur enska boltans leita í 66° Norður: „Heimurinn er lítill“

Aron Guðmundsson skrifar
Bergur Guðnason hannar fatnað hjá 66° Norður og hlaut hrós frá leikmanni enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal á dögunum. Margar stjörnur úr þessari mest þekktustu deildarkeppni heims hafa vanið sig á að klæðast reglulega flíkum frá íslenska fataframleiðandanum.
Bergur Guðnason hannar fatnað hjá 66° Norður og hlaut hrós frá leikmanni enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal á dögunum. Margar stjörnur úr þessari mest þekktustu deildarkeppni heims hafa vanið sig á að klæðast reglulega flíkum frá íslenska fataframleiðandanum. Vísir/Samsett mynd

Stjörnur enska boltans, nú­verandi og fyrr­verandi eru yfir sig hrifnir af vörum frá ís­lenska fata­fram­leiðandanum 66 norður. Bergur Guðna­son, hönnuður hjá 66 norður út­vegaði nú ný­verið leik­manni stór­liðs Arsenal ís­lenskri hönnun og sá lét á­nægju sína skírt í ljós á sam­fé­lags­miðlum svo eftir því var tekið.

Bergur er eins og fyrr segir starfs­maður 66 norður og er búinn að vera það síðast­liðin tæp fjögur ár eftir að hann flutti heim með unnustu sinni frá París.

„Ég lærði fata­hönnun í Lista­há­skóla Ís­lands og flutti síðan út til Parísar og fór að vinna fyrir tísku­hús þar. Seinna varð unnusta mín ó­létt og við tókum þá á­kvörðun að flytja aftur heim og lifa fjöl­skyldu­lífi hér heima í staðinn fyrir að gera það í hasarnum úti í París. Þá var mér boðið starf hjá 66 norður hér heima og hef verið þar síðan þá.“

Það vakti at­hygli á dögunum þegar að Reiss Nel­son, einn af leik­mönnum enska úr­vals­deildar­fé­lagsins Arsenal tók mynd af 66 norður poka og merkti Berg inn á myndina.

Bergur er góður vinur ís­lenska lands­liðs­mark­varðarins Rúnars Alex Rúnars­sonar, sem var á sínum tíma á mála hjá enska úr­vals­deildar­fé­laginu Arsenal. Þaðan kemur tengingin við Reiss Nel­son, nú­verandi leik­mann fé­lagsins.

„Rúnar tengdi okkur saman í fyrra. Reiss er mikill á­huga­maður um tísku og að mínu mati einn best klæddi fót­bolta­maðurinn í dag. Við höfum verið í stöðugum sam­skiptum í gegnum What­sApp sam­skipta­for­ritið. Að tala um tísku, föt og hann sagðist elska 66 norður.

Myndsímtal á Regent Street

Hann hringir svo í mig í fyrradag og vildi at­huga hvort ég væri í London og gæti hitt hann í 66 norður búðinni á Regent Street. Þá var ég staddur hérna heima á Ís­landi en sagði honum bara að gera sér ferð í búðina. Hann mætti á svæðið og hringdi í mig á Facetime alveg al­sæll á meðan að hann var í búðinni. Hann var að fara yfir línurnar sem við erum með, skoða alls konar föt.“

„Hann átti svo sem eitt­hvað fyrir af 66 norður fatnaði. Hann tók ein­hverja jakka, buxur, boli og peysur í þetta skipti.“

Að­búnaðurinn í verslun 66 norður við Regent Street í London er þannig að hægt er að bjóða þekktari við­skipta­vinum, svo sem frægum knatt­spyrnu­mönnum, að koma á neðri hæð verslunarinnar í sér verslunar­rými.

„Þar geta þeir fengið að vera í friði og þar er búið að velja ein­hverjar sér­stakar flíkur á slá til þess að sýna. Margt af þessu voru tísku­tengdar vörur, sumar hverjar fást bara í verslun okkar í London.“

Thomas Frank, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford í vesti frá 66 NorðurVísir/Getty

Og téður Reiss Nel­son er langt í frá eini ein­stak­lingurinn úr ensku úr­vals­deildinni sem hefur leitað í flíkur frá ís­lenska fata­fram­leiðandanum. Thomas Frank, knatt­spyrnu­stjóri Brent­ford hefur sést skarta flík frá 66 norður á hliðar­línunni í ensku úr­vals­deildinni og þá hafa stór­stjörnur í deildinni einnig sótt í ís­lensku hönnunina.

„Það hafa fullt af knatt­spyrnu­mönnum poppað upp hjá okkur upp á síð­kastið. Stór nöfn á borð við Bruno Fernandes og Rap­hael Vara­ne hjá Manchester United. Svo er Trent Alexander-Arn­old mikill að­dáandi 66 norður fatnaðar og dá­lítið skemmti­leg tenging við þetta er að hann spilar jú ein­mitt í treyju númer 66. Hann á heilu línurnar frá okkur. Hann elskar merkið og finnst þetta mjög skemmti­legt.“

Raphael Varane, miðvörður Manchester United í Tind, úlpu frá 66 Norður

Þekkir umhverfi knattspyrnunnar vel

Þá hefur Ian Wrig­ht, fyrr­verandi fram­herji Arsenal og enska lands­liðsins sést í vörum frá 66 norður sem og Romeo Beck­ham, einn af sonum stjörnuparsins David og Victoriu Beck­ham. En eru það stjörnurnar sem eiga fyrsta skrefið í því að út­vega sér flíkur eða eru full­trúar 66 norður að teygja sig út til þeirra?

„Bæði og, heimurinn er lítill og þetta gerist oftast í gegnum persónuleg sambönd. Ég hef ágætis tengingar í fótboltaheiminum þar sem faðir minn var atvinnumaður í Englandi og einnig eftir að ég vann í tískuhúsum í París. Per­sónu­leg sam­bönd sem maður vinnur síðan úr núna og tengist í gegnum. Þau hafa mikið að segja.

Við reynum að hafa fötin okkar rosa­lega flott, á­samt því að vera að huga að ýmsu tísku­tengdu líka. En fötin frá 66 norður verða líka að vera praktísk og einn af aðal þáttunum er sá að fötin verða mörg hver að henta ís­lenskum að­stæðum. Við erum byrjuð svona smátt og smátt að færa okkur meira yfir á tísku hliðina en á sama tíma að halda í útivistarfíkur sem virka við allar aðstæður, að labba upp Esjuna eða vera á tískuvikunni í París.

Beckham fjölskyldan hefur í gegnum tíðina talin hafa gott tískuvit. Hér má sjá Romeo Beckham í fatnaði frá 66 Norður

Oftar en ekki frekar hallærislegir

En hvað finnst Berg sjálfum um klæða­burð knatt­spyrnu­manna á heildina litið?

„Það eru nokkrir þarna sem eru frekar nettir. Til að mynda téður Reiss Nel­son og svo Hector Bellerin, fyrr­verandi leik­maður Arsenal. Gaman að segja frá því að Hector hefur sýnt 66 mikinn áhuga, og á alveg þó nokkrar flíkur frá okkur.

„En að eiga nóg af pening þýðir ekki að maður sé með tískuvit. Gott dæmi er Cristiano Ronaldo. Stundum hrúga þessir menn bara nógu mikið af merkja­vöru á sig og telja sig þar með vera orðnir kúl. Það er ekki sama sem merki þarna á milli. Það er gaman að fylgjast með klæða­burði knatt­spyrnu­stjarnanna. Insta­gram spilar rosa­lega stóran þátt í þessu öllu saman. Leik­menn eru þar oft að birta myndir af sér í alls konar flíkum. 

Bellerin hefur mikinn áhuga á tísku. Hér er hann á tískuvikunni í París árið 2019.Vísir/Getty

Svo er miklu meira um það núna að tekið er eftir því hverju menn klæðast þegar að þeir mæta til æfinga og stundum í leiki ef það er ekki ein­hver skylda að mæta í liðs­galla. Svo veit maður af inn­byrðis sam­keppni milli leik­manna hjá sumum liðum, hver sé best klæddur. Menn eru að skjóta á hvern annan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×